Markmið Íslands í aðildarviðræðum
Fullt forræði yfir sjávarútvegi var lykilkrafa í aðildarviðræðum Íslendinga við Evrópusambandið. Þó að ekki hafi verið búið að leggja fram samningsmarkmið var búið að móta þau. Þar var lagt til að lögsagan yrði skilgreind sem sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnunarsvæði.
Samningsmarkmið Íslands má finna á vef stjórnarráðsins og greinargerð með þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Þau birtast einnig í fyrri samningaviðræðum við Evrópusambandið, með fyrirvara um að ef Íslendingar ákveða að halda áfram viðræðum verði þau yfirfarin og uppfærð.
Í athugasemd við þingsályktunartillögu frá árinu 2009 er tilgreint að á meðal grundvallarhagsmuna Íslands sé: Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum, að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum, að tryggja öflugan íslenskan landbúnað, lýðræðislegan rétt til að stýra almannaþjónustu á félagslegum forsendum, standa vörð um réttindi launafólks og vinnurétt og ná fram hagstæðu og vaxtarhvetjandi samkeppnis- og starfsumhverfi fyrir atvinnulíf á Íslandi.
Í greinargerð með þingsályktunartillögu utanríkisráðherra segir að þessi sjónarmið eigi enn við, auk þess sem vísað er í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar, þar sem tilgreint er að megináherslur Íslands muni að …