Ráðgjafinn Marinó G. Njálsson furðar sig á auglýsingu Áfram Ísland þar sem spurt er „Náttúruauðlindir til sölu? Segjum NEI þann 29. ágúst!,“ er þá vísað til þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um hvort Ísland eigi að fara á ný í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Engar útskýringar eru að finna í auglýsingunni hvaða náttúruauðlindir sé verið að selja eða hverjum þær eigi að selja. Marinó segir í færslu á Facebook að auglýsingunni sé ætlað að vekja ótta um að aðild að Evrópusambandinu, sem Landskjörstjórn segir ekki er verið að kjósa um 29. ágúst, muni opna á sölu náttúruauðlinda.
Marinó skilur ekkert í auglýsingunni og kallar eftir skýringum: „Hvers vegna þarf að beita blekkingum?“