Margrét Helga og Jón Stefán vilja dæma fólk

Mynd: Shutterstock
Þann 8. maí auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingarblaði laust til umsóknar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Umsóknarfrestur rann út 26. maí síðastliðinn.
Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum. Stefnt er að því að ákvörðun um skipun liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn dómnefndar berst ráðherra.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
- Erna Björt Árnadóttir aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness,
- Jón Stefán Björnsson aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness,
- Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis,
- Sigmundur Guðmundsson lögmaður,
- Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður.