Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin. Hún lést í gær 86 ára að aldri.
Margrét Helga var fædd árið 1940. Hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1967 og starfaði eftir það í Þjóðleikhúsinu til ársins 1972. Þá hóf hún áratuga langan og farsælan feril hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Enginn íslenskur leikari hefur leikið fleiri hlutverk í verkum Laxness en Margrét Helga. Hún lék meðal annars Uglu í Atómstöðinni og Sigurlínu í Sölku Völku.
Margrét Helga var máttarstólpi í starfi Leikfélags Reykjavíkur og lék til að mynda launalaust í miðnætursýningum leikfélagsins til að safna fyrir byggingu Borgarleikhússins.
Heiðursverðlaunahafi Grímunnar
Á ferlinum lék Margrét Helga yfir 200 hlutverk í sviðsverkum, útvarpsleikritum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Hún hlaut Grímuverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Violet Weston í leikritinu Fjölskyldunni í leikstjórn Hilmis Snæs. Hún hlaut heiðursverðlaun Grímunnar árið 2024 fyrir framúrskarandi og ómetanleg störf í þágu íslenskrar leiklistar í meira en hálfa öld.
Margrét Helga hlaut Edduverðlaun tvisvar, fyrst árið 1999 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Englar alheimsins, og síðar árið 2012 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Eldfjall.
Síðasta frumsýning Margrétar Helgu var þegar hún fór með hlutverk Marínu fóstru í sýningunni Vanja frændi í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Það var í janúar 2020 þegar hún var komin fast á áttrætt.
Margrét Helga eignaðist þrjú börn, Jakobínu Flosadóttur, Val Jóhann Vífilsson og Guðmund Örn Flosason. Guðmundur Örn lést árið 2022.