Margrét fær alþjóðleg umhverfisverðlaun í Miami – „Opnaði margar nýjar dyr“
„Þetta var formleg athöfn fyrir verðlaunin sem ég vann í fyrra. Þetta er mikill stökkpallur, einstakt tækifæri og í þessu felst líka víðtækt tengslanet um allan heim og markaðssetning sem getur verið kostnaðarsöm,“ segir hún.
Hún bætir við að verðlaunin hafi þegar haft veruleg áhrif á framgang verkefnisins.
„Það má segja að þessi verðlaun hafi opnað margar nýjar dyr.“
Boð á viðburð í London í kjölfarið
Margrét segir að í kjölfar viðurkenningarinnar hafi henni verið boðið á fleiri alþjóðlega viðburði.
„Mér er boðið á annan viðburð í London í ágúst þar sem ég hitti fjárfesta og aðra frumkvöðla,“ segir hún.
Að hennar sögn kom viðurkenningin henni sjálfri á óvart.
„Þetta er æðisleg tilfinning, smá óraunveruleg því ég bjóst alls ekki við að vinna verðlaun í fyrstu tilraun þegar mér var boðið að taka þátt.“
Hún segir tilfinninguna einkennast af þakklæti og auðmýkt.
„Fyrst og fremst finn ég fyrir þakklæti og auðmýkt og get ekki betur séð en að framtíðin sé mjög björt þegar kemur að umhverfisvænum umbúðum.“
Gagnrýnir litla umfjöllun hérlendis
Í yfirlýsingunni lýsir Margrét einnig undrun yfir litlum viðbrögðum íslenskra fjölmiðla.
„Þessi litla athygli sem ég fæ hér innanlands hjá meginstraumsmiðlunum og RÚV kemur mér hins vegar mikið á óvart, miðað við alla þessa athygli sem varan er að fá um allan heim. Ég sem hélt að þau væru svo umhverfisvæn, mér sennilega skjátlaðist þar,“ segir Margrét.
Valið umbúðafyrirtæki ársins
Eins og greint var frá í fyrra var fyrirtæki Margrétar valið sjálfbærasta umbúðafyrirtæki ársins 2025 af breska viðskiptaritinu Corporate LiveWire.
Fyrirtæki Margrétar Friðriksdóttur, PLASDA valið sjálfbærasta umbúðafyrirtæki ársins 2025
PLASDA hefur sérhæft sig í þróun vistvænna umbúða úr plöntugrunni sem brotna niður í náttúrunni án þess að skilja eftir sig örplast eða önnur eiturefni. Vörum fyrirtækisins er ætlað að leysa hefðbundið plast af hólmi, en það getur tekið hundruð ára að brotna niður í náttúrunni.
Í viðtali sem tekið var við hana í tilefni verðlaunanna bendir Margrét á að örplastmengun sé eitt alvarlegasta umhverfisvandamál samtímans og að markmið fyrirtækisins sé að bjóða raunhæfa lausn við þeim vanda.