„Sorgardagur í sögu íslenskrar fjölmiðlunar. Það er afar bagalegt fyrir okkur sem þjóð að nú skuli aðeins einn fjölmiðill halda úti sjónvarpsfréttum,“ segir Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og fyrrum fréttakona. Í morgun var tilkynnt um að Sýn myndi hætta framleiðslu á sjónvarpsfréttum og að síðasti fréttatíminn yrði í kvöld. Þar með lýkur tæplega fjörutíu ára sögu einkarekinna sjónvarpsfrétta á Íslandi. Margir hafa lýst yfir skoðun sinni á þessum tíðindum.
Margir syrgja sjónvarpsfréttirnar: „Sorgardagur í sögu íslenskrar fjölmiðlunar“ - „Því munu eflaust einhverjir fagna“