Indíana Rós Ægisdóttir, verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar, segir marga vera í óheilbrigðu sambandi án þess að gera sér grein fyrir því og það eigi bæði við um ungmenni og fullorðna. Mikilvægt sé að fullorðnir séu fyrirmyndir.
Meira er um ofbeldi í nánum samböndum en áður var talið og ungmenni treysta sér síður til að segja frá. Þetta er meðal niðurstaðna ungmennaþinga Barnaheilla sem voru haldin um allt land frá febrúar til apríl. Þátttakendur voru nemendur í efstu bekkjum grunnskóla og úr framhaldsskólum.
Indíana segir ýmis úrræði vera til fyrir þau sem upplifa sig í ofbeldissambandi.
„Við reynum alltaf að kenna ungmennum að tala við einhvern fullorðinn sem þau treysta. Við verðum auðvitað sem fullorðið fólk að sýna þeim að þau geti treyst okkur og að þau geti leitað til okkar. Það er líka netspjallið 112.is og 1717 hjá Rauða krossinum. Stígamót eru líka með netspjall og þar er alltaf hægt að koma með vangaveltur.“
Indíana segir alla eiga að sinna forvörnum og fræðslu.
„Við berum ábyrgð á börnunum í kringum okkur. Þannig að þetta á að vera samstarf foreldra og skóla. Þetta að börn séu að kalla eftir aukinni fræðslu er ekkert ný frétt. Það er búið að vera í tugi ára. Þannig að við verðum að sinna því.“