Komið hefur í ljós að starfsmaður á bráðamóttöku Landspítalans tók við erindi lögreglunnar er hún óskaði eftir myndskeiðum í tengslum við mál þar sem karlmaður var dæmdur fyrir að brjóta gegn barnungri stúlku á gangi bráðamóttökunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum endaði verkefnið hjá starfsmanninum, sem síðar hætti þar störfum, og dagaði þar uppi. Spítalinn hefur í kjölfarið hnykkt á því hvert beiðnir sem þessar skuli fara til að hægt sé að verða við þeim.
Landspítalinn hafði áður greint frá því að hann ætlaði að afla upplýsinga hjá lögreglunni varðandi hvert hún sendi erindið. Það hefði ekki verið sent í hefðbundinn farveg til réttra aðila.
Fékk skilorðsbundinn dóm
Karlmaðurinn fékk skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að brjóta gegn stúlkunni fyrir tveimur árum.
Fram kom í dómnum að lögregla hefði óskað eftir myndskeiðum úr eftirlitsmyndavélum á bráðamóttökunni fimm dögum eftir atvikið. Spítalinn hefði lofað því að afhenda myndskeiðin.
Lögregla ítrekaði beiðnina viku síðar og aftur í september 2024. Þá var lögreglan upplýst um að misfarist hefði að finna umbeðin myndskeið og myndskeið frá júní 2024 væru ekki lengur til.
