Þingnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings hefur samþykkt að vísa máli sóttvarnalæknisins Anthony Fauci til dómsmálaráðuneytisins. Þar verður tekin ákvörðun um hvort kæra eigi Fauci fyrir að sýna þinginu vanvirðingu á þingfundi í síðustu viku um sóttvarnaaðgerðir Bandaríkjanna á tímum covid.
Líkt og við mátti búast var ákvörðunin samþykkt með atkvæðum repúblikana gegn atkvæðum demókrata. Í síðustu viku neitaði Fauci ítrekað að svara spurningum á þingfundi um viðbrögð bandarískra stjórnvalda við covid-faraldrinum.
Á fundinum vísaði Fauci oftar en hundrað sinnum til fimmta viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar, sem heimilar fólki að neita að svara spurningum ef svörin gætu verið notuð gegn því í sakamáli.
Óttast að verða ákærður af alríkisyfirvöldum
Tilgangur fundarins var meðal annars að kanna hvort Fauci hefði áður gefið þinginu rangar upplýsingar um heimsfaraldurinn. Fauci var einn helsti talsmaður bandarískra stjórnvalda meðan á heimsfaraldrinum stóð. Hann deildi reglulega opinberlega við Donald Trump Bandaríkjaforseta um viðbrögð stjórnvalda við veirunni.
Rand Paul, fulltrúi repúblikana í Kentucky-ríki og formaður þingnefndarinnar sem boðaði til fundarins, sagði Fauci ekki getað skýlt sér á bak við það að hafa fengið náðun á síðasta ári frá Joe Biden, sem þá gegndi embætti Bandaríkjaforseta. Fauci hefur sagst hafa neitað að svara spurningum af ótta við það að vera ákærður af hálfu alríkisyfirvalda.
„Fauci var ekki í neinni hættu á að vera sóttur til saka af alríkisyfirvöldum. Hann þurfti bara að segja sannleikann,“ sagði Paul í samtali við AP-fréttastofuna.
Paul lagði áherslu á að atkvæðagreiðslan í dag hefði ekki snúist um stefnu sóttvarnalæknisins eða fyrri yfirlýsingar hans. Hún hefði þess í stað beinst að því hvort vitni sem hefði hlotið náðun gæti komist upp með það að neita að svara spurningum nefndarinnar án þess að það hefði afleiðingar í för með sér.
Ákvörðun saksóknara gæti sett mikilvægt fordæmi
Fauci er alfarið ósammála fullyrðingum Pauls. Hann segir formanninn ítrekað hafa lýst því yfir á opinberum vettvangi að hann hefði það að markmiði að koma lækninum á bak við lás og slá.
Málinu hefur nú verið vísað til alríkissaksóknara í Washington. Saksóknarinn mun taka ákvörðun um hvort hefja eigi rannsókn eða hvort hefja skuli mál gegn Fauci fyrir að hafa sýnt þinginu vanvirðingu.
Ákvörðunin sem tekin verður í Washington gæti í máli Fauci gæti haft víðtækar afleiðingar í Bandaríkjunum. Hún gæti skýrt hvaða skyldur vitni sem hlotið hafa náðun forseta hafa gagnvart bandaríska þinginu.
Þá gæti hún haft fordæmisgildi ef Donald Trump Bandaríkjaforseti veitir samstarfsmönnum sínum náðun áður en hann lætur af embætti.