Lögreglu barst um klukkan sjö í kvöld tilkynning um að einstaklingur hefði fallið í Ölfusá. Maðurinn er fundinn og hefur verið fluttur með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi.
Þetta staðfestir aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi við fréttastofu.
Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi.
Fréttin hefur verið uppfærð með nýrri fyrirsögn eftir að maðurinn fannst.