Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti við Háafoss í Þjórsárdal í kvöld er látinn.
Fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi að maðurinn hafi verið látinn þegar hann fannst.
Að sögn Þorsteins M. Kristinssonar, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi, var maðurinn fluttur á Selfoss með þyrlunni. Þar tekur lögreglu við rannsókn á málinu.
Tilkynning barst um meðvitundarlausan einstakling við Háafoss í Þjórsárdal í kvöld. Allt tiltækt viðbragðslið var kallað til á hæsta forgangi.
Á þriðjudag leitaði Lögreglan á Suðurlandi ásamt björgunarsveitum og Landhelgisgæslu að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað.
Lögreglan á Suðurlandi getur ekki staðfest hvort um sama mann sé að ræða og gefur ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.