Fyrr í dag staðfesti Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, að lögreglunni hefði borist ábendingu um mann sem elti stúlku að skólalóð vopnaður hníf.
Í nýrri tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn hafi mögulega verið vopnaður hnífi og hefur lögreglan auk sérsveitar Ríkislögreglustjóra leitað hans. Sú leit hefur ekki borið árangur.
Atvikið sé enn í skoðun en ekki er hægt að veita nánari upplýsingar.