Þetta er meðal þess sem kom fram í samtali Vísis við Arndísi Báru Ingimarsdóttur, lögreglustjóra í Eyjum, en hún greindi einnig frá því að „ekkert líkamlegt tjón hafi orðið á fólki“. Hún segir aðgerðina jafnframt hafa gengið vel að mestu leyti. Málið sé í meðferð.
Mikill viðbúnaður var vegna aðgerðarinnar við íbúðarhúsnæði við Fífilsgötu og var lokað fyrir umferð um götuna. Staðarmiðillinn Tígull segir í frétt sem birt var í gær, föstudaginn 8. maí, að aðgerðin hafi varðað mann sem glími við andleg veikindi. Þar segir einnig að hann hafi verið ógnandi í framkomu og sé mjög sterkur.
Sérsveitarmenn voru samkvæmt heimildum Vísis fluttir ásamt manninum frá Eyjum með þyrlu og lentu á flugvellinum í Reykjavík klukkan eitt í nótt.