Allt tiltækt viðbragðslið var kallað út á hæsta forgangi eftir að ferðamenn sáu til manns í neyð niðri í gilinu við Háafoss í Þjórsárdal á Suðurlandi. Maðurinn er kominn um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og verið er að flytja hann, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Engar upplýsingar fást um líðan hans.
Útkallið var á hæsta forgangi. Björgunarsveitir og straumvatnsbjörgunarsveitarhópar frá höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út.
Leitað að ferðamanni á svæðinu
Á þriðjudag óskaði lögreglan á Suðurlandi eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu við leit að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað. Leitað var í grennd við Háafoss í Þjórsárdal þar sem síðast sást til bíls mannsins. Leitinni var síðan frestað fram yfir helgi.
Lögreglan á Suðurlandi getur ekki staðfest að um sama mann sé að ræða og gefur ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
Fréttin hefur verið uppfærð. Áður kom fram að verið væri að flytja einstaklinginn til Reykjavíkur. Rétt er að hann var fluttur á Selfoss, en Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.