Þyrla Landhelgisgæslunnar, lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir voru öll kölluð út á hæsta forgangsstigi.
Það var síðan laust fyrir klukkan tíu í kvöld sem Lögreglan á Suðurlandi sendi frá sér tilkynningu um að maðurinn hefði fundist neðar í ánni og verið bjargað á land.
Hann var í kjölfarið fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann til nánari aðhlynningar.
Ekki verða veittar nánari upplýsingar um líðan mannsins að svo stöddu.
Fréttin var uppfærð klukkan 21:53 eftir að Lögreglan á Suðurlandi gaf út nýja tilkynningu.