24 ára maður frá Gambíu er í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi eftir að reynt að nauðga þremur konum.
Atvikin áttu sér stað að morgni 18. ágúst í Heidelberg.
Samkvæmt sameiginlegri tilkynningu ríkissaksóknaraembættisins í Heidelberg og lögreglunnar í Mannheim nálgaðist maðurinn fyrst konu sem var á göngu með hund sinn um klukkan 10.
Hann er sagður hafa gripið um brjóst konunnar og síðan reynt að draga hana inn á nálægan maísakur. Konan öskraði og veitti harða mótspyrnu þar til henni tókst að losa sig og hlaupa á brott.
Réðst að tveimur til viðbótar
Um 25 til 30 mínútum síðar er maðurinn sagður hafa ráðist að tveimur öðrum konum í sitthvoru lagi.
Í báðum tilfellum greip hann í hendur eða úlnliði kvennanna og reyndi að draga þær inn í sama maísakur með valdi.
Báðar konurnar veittu mótspyrnu og sluppu að lokum.
Vegfarendur sem urðu varir við það sem var að gerast höfðu samband við lögreglu sem hóf leit að manninum.
Greip í klofið á lögreglukonu
Maðurinn var handtekinn skömmu síðar en þá er hann sagður hafa gripið í klofið á lögreglukonu sem tók þátt í handtökunni.
Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um ítrekaðar tilraunir til kynferðisbrota, kynferðislega áreitni og fleiri brot.
Yfirvöld rannsaka jafnframt hvort maðurinn tengist fleiri sambærilegum atvikum.