Maður slasaðist í vinnuslysi við tengivirki í Borgarfirði í dag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti manninn til aðhlynningar á Landspítala. Ekki fást upplýsingar um líðan hans.
Rafmagnslaust var í Borgarfirði og á Mýrum eftir útleiðslu í tengivirki við Vatnshamra fyrr í dag. Rafmagn kom á í Borgarnesi rétt fyrir klukkan 15.
Íbúar eru beðnir að fylgjast með tilkynningum á vefsíðu Landsnets.
Fréttin verður uppfærð.