Breski grínistinn John Ryan, sem búsettur er i London í Englandi, var nýlega staddur hér á landi eftir að hafa stigið frá borði skemmtiferðaskipsins Sky Princess á Akureyri þar sem hann skemmti farþegum. Ryan flaug síðan heim til London á sunnudagsmorgni. Hrósar hann Íslendingum fyrir viðbrögð þeirra þegar færiböndin hættu að virka og segir hann að aðrar þjóðir og starfsmenn annarra flugvalla hefðu stressast allverulega í slíkum aðstæðum.
Lýsir erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli: „Heyrirðu þetta, Heathrow?“