Lyfjastofnun varar við fölsuðum Xanax-hylkjum sem orðið hefur vart við í umferð á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu að venjulegt Xanax sé á töfluformi en falsaða lyfið sé í samsttum hvítum hylkjum.
Það inniheldur hvorki alprazólam né bensódíazepín, heldur mun sterkara slævandi dýralyf sem nefnist medetómidín. Inntöku þess fylgir mikil hætta á ofskömmtun sem haft getur alvarlegar afleiðingar.
Medetomidín er virka efnið í ýmsum slævandi og verkjastillandi lyfjum sem aðallega eru notuð í dýralækningum. Það er gjarnan notað eitt og sér eða blandað við önnur lyf í minni aðgerðum eða sem undanfari svæfingar hjá dýrum.
Medetomodín getur verið sérstaklega hættulegt fyrir starfsemi hjartans þar sem efnið hægir á hjartslætti og lækkar blóðþrýsting. Ofskömmtun getur reynst hættuleg og krefst flókinnar meðferðar.
Verði vart einhverra þeirra einkenna sem nefnd eru hér að ofan, skal þegar í stað hafa samband við Neyðarlínu í síma 112.