Bandaríski lyfja- og snyrtivöruframleiðandinn Johnson & Johnson hyggst greiða samtals 5,5 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar nærri 700 milljörðum króna, í sáttagreiðslur til að greiða úr tugum þúsunda lögsókna á hendur fyrirtækinu.
Málaferlin hafa staðið yfir í meira en áratug en því hefur verið haldið fram að barnapúður og aðrar vörur fyrirtækisins sem innihalda talk hafi valdið eggjastokkakrabbameinum.
Sáttagerðin nær til nær allra 76 þúsund lögsóknanna sem hafa verið höfðaðar á hendur fyrirtækinu. Það hafði áður náð dómssátt í málum sem sneru að því hvort talk í vörum fyrirtækisins innihéldi asbest og ylli krabbameini í lungum.
Til þess að sáttin nái fram að ganga þurfa 95% stefnenda að samþykkja sáttagreiðsluna. Lögmannsstofur þeirra segja þetta vera farsæla lausn á langri deilu.
Viðurkenna ekki sök og segjast aðeins vilja ljúka málaferlunum
Erik Haas, stjórnandi hjá fyrirtækinu, segir enga stoð fyrir málssóknunum. Með sáttagreiðslunni vilji fyrirtækið einfaldlega ljúka málinu.
„Á meðan við erum sannfærð um að fyrirtækið hefði á endanum haft sigur ef málin rötuðu fyrir dóm, rétt eins og það hefur gert í þeim málum sem búið er að dæma í, þá gefur þessi lausn okkur tækifæri til að ljúka þessu máli og einbeita okkur að því að halda áfram að þróa lyf og útbúnað sem bjargar lífum,“ sagði Haas.
Í síðustu viku sagði dómari í máli nokkurra stefnenda að þeir hefðu ekki fært nægilegar sönnur á að talkið ylli krabbameini í eggjastokkum.
Johnson & Johnson hefur um langa hríð neitað ásökunum um að vörur þess yllu krabbameini, sagt talkið öruggt og að það innihéldi ekki asbest. Fyrirtækið skipti talki út fyrir maíssterkju í barnapúðri sínu árið 2020.