Nýsjálenska ríkisstjórnin kynnir í dag frumvarp til laga sem ætlað er að banna samfélagsmiðlanotkun barna undir 16 ára aldri. Nýja-Sjáland bætist þar með í stækkandi hóp landa sem vilja halda börnum frá miðlum á borð við TikTok og Instagram, þar sem nágrannaríkið Ástralía reið á vaðið í desember.
Forsætisráðherrann Christopher Luxon segir ekki hægt að umbera þann skaða sem unga kynslóðin geti orðið fyrir af völdum illviðráðanlegs utanaðkomandi þrýstings á samfélagsmiðlum, sem væru auk þess ávanabindandi og fullir af efni sem ekki hæfði börnum.
Vitað væri að eitt af hverjum þremur börnum á aldrinum þrettán til sautján ára verji hið minnsta fimm klukkustundum á dag á samfélagsmiðlum. Luxon sagði samfélagsmiðlafyrirtækjum, eftir laganna bókstaf, verða skylt að tryggja með öllum tæknilegum ráðum að börn komist ekki inn, að viðlögðum sektum.
Ábyrgðin verður fyrirtækjanna en ekki barnanna
Menntamálaráðherrann Erica Stanford segir ábyrgðina verða lagða á fyrirtækin sjálf, engar refsingar bíði barnanna eða forráðamanna þeirra.
Ekki þykir öruggt að frumvarpið komist gegnum þingið. Flokkurinn Nýja Sjáland fyrst segist ekki geta stutt frumvarpið í ljósi þess hve illa hafi gengið með bannið í Ástralíu og frjálslyndi flokkurinn ACT kveðst telja öruggt að lögin virki ekki því börn og unglingar komist auðveldlega fram hjá öllum tálmunum.
Niðurstöður óháðrar rannsóknar sem birtar voru í júní sýna lítil merki um að dregið hafi úr samfélagsmiðlanotkun ástralskra barna þrátt fyrir bann sem innleitt var um áramótin við notkun þeirra á miðlum á borð við Instagram, Facebook og TikTok.