Lundar hafa sést við og í Hrísey síðustu ár en varp hefur ekki verið staðfest. Fréttastofa slóst í för með hóp sem rannsakar og kortleggur lundastofninn hér á landi í siglingu í kringum eyjuna. Erpur Snær Hansen doktor í líffræði sem rannsakað hefur lundann í marga áratugi fer fyrir hópnum.
Það leið ekki á löngu áður en hópurinn kom auga á fyrstu lundana. Teknar eru myndir til að skoða gogginn, því hann segir til um aldur lundana og hvort hann sé eldri en fjögurra ára, á varpaldri.
Fyrsta lundapysjan sást skömmu síðar og Erpur sagði engann vafa á því að lundinn væri búinn að nema land í Hrísey, sem sé mjög góður staður fæðulega og laus við ref og minnk.
Lunda hefur fjölgað mikið norðaustanlands síðustu ár. „Þetta er varp sem er að byrja og ég held að eigi bara eftir að vaxa,“ segir Erpur.
Lundavarp staðfest í Hrísey eftir tálbeitutilraun