Íslensk kona á níræðisaldri vann rúmar 130 milljónir króna í lottó á laugardag. Hún segir líklegt að vinningurinn komi sínum nánustu til góða en hyggst einnig nýta peninginn í að fara í langþráð ferðalag til Asíu.
Fram kemur í tilkynningu Íslenskrar getspár að konan sé rúmlega áttræð og búsett í Reykjavík. Hún hafði keypt miðann sinn á lotto.is og unnið sexfaldan vinning.
Þar segir að vinningshafinn hafi verið nývöknuð á mánudagsmorgni þegar henni barst símtal þess efnis að hún hefði unnið stóra vinninginn. Hún hringdi síðan í son sinn sem var að hennar sögn „hoppandi kátur“ við það að heyra fréttirnar.
Í tilkynningu segir að innt eftir því hvað hún hygðist gera við vinninginn hafi konan svarað því að sér þætti mikilvægt að láta gott af sér leiða og því væri líklegt að vinningurinn kæmi hennar nánustu einnig til góða.
Þá sagði hún jafnframt að sig hefði lengi dreymt um að ferðast til Asíu. Fram til þessa hefði kostnaður staðið í vegi fyrir því að af yrði en nú fengi hún loks tækifæri til að láta af ferðalaginu verða.