Fréttastofu barst ábending frá einum flugvallarstarfsmanni um að röðin væri orðin heldur löng núna í morgunsárið. Þetta væri þriðji morguninn í röð þar sem röðin í öryggisleitina væri svo löng.
Áttu mynd af vettvangi? Veistu meira? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.
Fjallað var um það á Vísi að löng röð hefði myndast á flugvellinum á fimmtudag. Talið var að fjöldi ferðalanga sem komu hingað til lands til að sjá almyrkvann hefði verið á leið úr landi. Ekki náðist í upplýsingafulltrúa Isavia en telja má að fólk streymi enn úr landi vegna almyrkvans.
Í viðtalinu fyrr í vikunni sagði Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, að hann gerði ráð fyrir annarri eins röð á föstudag, sem virðist hafa passað miðað við upplýsingar fréttastofu. Allt hafi gengið vel á fimmtudag og gekk röðin þá skilmerkilega fyrir sig.
Á sama tíma og margir komu til landsins til að sjá almyrkvann er einnig háannatími á flugvellinum.
Röðin í dag náði um tíma að langtímabílastæðunum en er hún orðin eitthvað styttri. Gera má ráð fyrir því að röðin muni styttast þegar líður á daginn.
Áttu mynd af vettvangi? Veistu meira? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.