Borgarstjórnarskosningarnar eru æsispennandi í ár en samkvæmt skoðanakönnunum undanfarinna daga er ekkert öruggt í stöðunni hvað varðar mögulega meirihluta.
Niðurstöður Gallup benda til þess að Sjálfstæðisflokkurinn geti myndað meirihluta með Framsókn og Viðreisn en Maskína var á öðru máli og telja hægri meirihluta ekki mögulegan án aðkomu Viðreisnar.
Skoðanakannanir eru samt í eðli sínu spá og það sem máli skiptir er það sem kemur upp úr kjörkössunum í langstærsta sveitarfélagi landsins og nú er að fást mynd á afstöðu Reykvíkinga. Fyrstu tölur bentu strax til mikillar hægri sveiflu í borginni en þá mældist Sjálfstæðisflokkur með 31,9% greiddra atkvæða og 9 borgarfulltrúa. Þegar næstu tölur komu voru fulltrúarnir þó aðeins 8 sem útilokaði tveggja flokka meirihluta með Miðflokki en níundi fulltrúinn skilaði sér aftur með lokatölum sem eru eftirfarandi:
- Sjálfstæðisflokkurinn: 32,5%
- Samfylkingin: 18,0%
- Vinstrið: 9,4%
- Viðreisn: 10,5%
- Miðflokkur: 12,6%
- Framsókn:6,8%
- Sósíalistaflokkur: 4,0%
- Píratar: 2,9%
- Flokkur fólksins: 3,3%
- Okkar borg: 0,4%
- Góðan daginn: 0,5%
Sjálfstæðismenn fengju þannig 9 menn kjörna. Samfylkingin heldur sínum 5 fulltrúum, Viðreisn bætir við sig einum, Miðflokkurinn fengi þrjá menn kjörna, Framsókn fær einn borgarfulltrúa, Vinstrið nær inn tveimur og Sósíalistar ná inn einum. Flokkur fólksins, Píratar, Góðan daginn og Okkar börn næðu ekki enn manni.
Meirihlutinn í borginni er fallinn og ómögulegt er að mynda meirihluta til vinstri. Reykvíkingar kölluðu eftir breytingum og breytingar eru í vændum. Til að mynda meirihluta þarf 12 borgarfulltrúa og gæti Sjálfstæðisflokkurinn myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn. Eins er mögulegt að mynda tveggja flokka meirihluta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar en ólíklegt þykir að slíkur meirihluti hugnaðist Sjálfstæðisflokki sem stendur tvímælalaust uppi sem sigurvegari þessara kosninga og yfirgnæfandi líkur á að næsti borgarstjóri verði Hildur Björnsdóttir.
Niðurstöður borgarstjórnarkosninganna árið 2022 voru eftirfarandi:
- Sjálfstæðisflokkur: 24,5% og 6 borgarfulltrúar
- Samfylkingin: 20,29% og 5 borgarfulltrúar
- Framsóknarflokkurinn: 18,73% og 4 borgarfulltrúar
- Píratar: 11,63% og 3 borgarfulltrúar
- Sósíalistaflokkurinn: 7,7% og 2 borgarfulltrúar
- Viðreisn: 5,19% og 1 borgarfulltrúi
- Flokkur fólksins: 4,51% og 1 borgarfulltrúi
- Vinstri græn: 4% og 1 borgarfulltrúi
- Miðflokkurinn: 2,45% og enginn borgarfulltrúi
- Ábyrg framtíð: 0,79% og enginn borgarfulltrúi
- Reykjavík besta borgin: 0,22% og enginn borgarfulltrúi
Fréttin hefur verið uppfærð.