Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Emil Eydal Haraldssyni, 10 ára, en síðast er vitað um ferðir hans á Melabraut á Seltjarnarnesi um hálfáttaleytið í morgun. Emil, sem er nemandi í Grandaskóla, er klæddur í dökkbláa Nike úlpu með tvær rendur á ermum og græn stígvél. Emil er skolhærður og bláeygður.Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Emils, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.
Lögreglan lýsir eftir 10 ára dreng