Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni er sammála umhverfisráðherra um að ástæða sé til að herða viðurlög við utanvegaakstri. Eðlilegt sé að atvik eins og uppátæki erlendra ferðamanna við Emstruleið og Kötlujökul síðustu helgi dragi dilk á eftir sér.
Ferðamennirnir frönsku fengu sekt fyrir athæfið. Þeir greiddu sektina og eru því lausir allra mála. Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir lögreglu ekki telja ástæðu til að gefa upp sektarupphæðina.
„Við höfum ekki gefið hana upp og teljum ekki ástæðu til þess. Í slíkum málum höfum við ekki verið að gefa upp einhverjar krónutölur og höldum okkur við það. En sektarheimildin er vissulega til staðar og er hún allt frá tíu þúsund krónum upp til einnar milljónar.“
Íris segir upphæð sektarinnar fara eftir því hversu umfangsmikið tjónið er með tilliti til náttúruspjalla.
„Þegar slíkt kemur upp hefur lögreglan rannsókn og þá veltur það á þeim gögnum sem liggja fyrir þegar málið kemur upp. Málið er metið og tekið mið af því hversu alvarlegt brotið er og í þessu tilfelli hversu miklu tjóni það veldur. Það er þá mat ákærusviðs hversu há sektarupphæðin er með tilliti til þess tjóns sem ökutækið hefur valdið.“
Íris tekur undir með Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, sem segir brýnt að grípa til aðgerða sem sporni við frekari náttúruspjöllum. Umræðan um atvik helgarinnar undirstriki samstöðu um mikilvægi þess að gæta hagsmuna íslenskrar náttúru.
„Hvort að þessar upphæðir séu of lágar eða hafi nægileg varnaráhrif er umræða sem er alveg verðugt að taka upp,“ segir Íris.
„Eins og Jóhann kom inn á í sinni tölu er þetta landið okkar og hálendið okkar. Við erum með gríðarleg verðmæti sem við þurfum að standa vörð um og ef þetta er ekki að hafa fælingarmátt finnst mér alveg tilefni til að taka það til endurskoðunar og umræðu. Það er alltaf rými til bætinga.“