Þýska lögreglan skaut til bana mann sem grunaður er um að hafa ekið á mannfjölda nálægt gleðigöngu í Berlín í gærkvöldi. Ein kona lét lífið í árásinni og 29 særðust.
Þýski miðillinn rbb hefur eftir heimildum sínum að maðurinn hafi verið skotinn til bana í lögregluaðgerð í Spandau, úthverfi Berlínar, fyrir skemmstu.
Þar segir að samkvæmt fyrstu upplýsingum hafi hann ráðist að lögreglumönnum með eggvopni sem hafi orðið til þess að hann var skotinn. Hann lét lífið þrátt fyrir endurlífgunartilraunir á vettvangi.
Mannsins, sem fjölmiðlar hafa nefnt Abdul B, hafði verið leitað í dag. Hann er talinn vera tengdur öfgahópum íslamista.
Alexander Dobrint, innanríkisráðherra Þýskalands, sagði á blaðamannafundi í dag að allt benti til þess að um að verknaðurinn í gærkvöldi hefði verið hryðjuverkaárás. Hann sagði enn fremur að ódæðismaðurinn hefði stigið út úr sendibílnum, ráðist að nærstöddum með sveðju og veitt nokkrum þeirra alvarlega áverka.
Annar maður, sem talinn var hafa setið í farþegasæti bílsins, var handtekinn fyrr í dag.
Fréttin hefur verið uppfærð.