Dyraverðir sem starfa án leyfis og réttinda á veitingastöðum hér á landi vinna oft fyrir fyrirtæki sem séu með dyraverði á mörgum stöðum, segir Heimir Ríkharðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Nokkur slík fyrirtæki starfi á landinu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur veitinga- og skemmtistöðum í gærkvöld og nótt. Einum þeirra var lokað í samstarfi við Skattinn þar sem grunur var um skattalagabrot auk þess sem dyraverðir á staðnum voru ekki með starfsleyfi.
Tveimur stöðum var lokað vegna þess að þeir voru dyravarðalausir eftir að lögregla stöðvaði rekstur öryggisþjónustu sem var ekki með starfsleyfi.
Heimir segir lögregluna hafa farið inn á nokkra veitinga- og skemmtistaði í nótt til að kanna hvort öryggisverðir hefðu starfsleyfi og staðirnir sjálfir rekstrarleyfi.
„Við fylgjumst náttúrulega með því hvort dyraverðir og öryggisverðir séu með starfsleyfi og kunnáttu til að sinna þessu starfi. Þetta er gert reglulega og í þessu tilfelli var einum veitingastað lokað vegna þess að dyraverðir voru ekki með réttindi og það var þar grunur um skattalagabrot,“ segir Heimir.
Lögregla ætlar að halda eftirliti sínu og aðgerðum áfram á næstu dögum og vikum.