Greint var frá því í gær að samtökin væru að halda upp á fimmtán ára afmæli sitt og var lögregla með töluverðan viðbúnað við Auðbrekku þar sem afmælið var haldið. Lögreglan lokaði götum vegna viðburðar og samkvæmt frétt RÚV var leitað á fólki sem ætlaði í afmælið.
Lögreglan hefur áður verið með eftirlit með samkvæmum samtakanna en í september 2025 var lögreglan, auk sérsveitar Ríkislögreglustjóra, með sérstaka aðgerð við Auðbrekku vegna veislu vélhjólaklúbbsins. Þar voru þrír handteknir.
Engum var meinaður aðgangur að gleðskapnum en sömuleiðis fékk enginn að fara inn nema leitað væri á honum fyrst.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.