Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður, sem kærð hefur verið fyrir fjárdrátt úr dánarbúi, var lögráðamaður að minnsta kosti tveggja einstaklinga í þjónustu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Þetta segir í svari velferðarsviðs borgarinnar við fyrirspurn fréttastofu.
„Velferðarsvið hefur lagt sig fram við að styðja við þá einstaklinga sem um ræðir sem óhjákvæmilega upplifðu brot á trausti þegar upp komst um málið,“ segir í svarinu.
Tveir hafa kært lögmanninn fyrir að draga sér á annan tug milljóna króna úr dánarbúi móður þeirra. Guðrún fór fyrir skiptum á dánarbúinu og féð var geymt á fjárvörslureikningi lögmannsstofu hennar, Logia ehf. Stofan er nú gjaldþrota.
Hið opinbera hefur skipað lögmanninn fjárráðamann fólks
Guðrún hafði verið skipuð fjárhaldsmaður konunnar áður en hún dó en konan var svipt fjárræði nokkrum mánuðum fyrir andlátið. Það var ekki fyrr en erfingjum konunnar bárust fregnir af því að lögmannsréttindi hennar hefðu verið niðurfelld í upphafi árs sem þá fór að gruna að eitthvað væri athugavert við meðferð dánarbúsins.
Þegar þeir könnuðu málið kom í ljós að dánarbúið var tómt, segir einn erfingjanna. Hann segir dómara hafa skipað Guðrúnu fjárhaldsmann móður sinnar. Samskipti við hana hafi verið með ágætum og henni því falið að skipta dánarbúinu þegar þar að kom.
Í svari velferðarsviðs segir að lögmaðurinn hafi verið lögráðamaður minnst tveggja einstaklinga sem búa í sértæku húsnæði á vegum Reykjavíkur. Borgin hafi óskað eftir upplýsingum um hvort lögmaðurinn fari með fjármál fleiri einstaklinga sem séu í úrræði á vegum borgarinnar.
Sýslumaður hafi ekki getað veitt þær upplýsingar.
Skipun fjárhaldsmanns eða ráðsmanns yfir einstaklingi sem ekki hefur burði sjálfur til að hafa umsjón með fjármálum sínum heyrir undir sýslumann:
„Ef einstaklingur er sviptur sjálfræði, fjárræði eða hvoru tveggja með dómsúrskurði færast lögráðin til sýslumanns sem skipar viðkomandi lögráðamann. Lögráðamaðurinn er valinn í samráði við hinn ólögráða, sem getur óskað eftir því að tiltekinn aðili verði skipaður lögráðamaður hans. Oft eru lögráðamenn starfandi lögmenn,“ segir á Ísland.is.