Eftirlitsstofnun Evrópusambandsins, sem berst gegn sviksamlegum viðskiptaháttum, hefur komið upp um smyglhring sem flutti inn 200 þúsund falsaða smokka frá Kína. Starfsmenn stofnunarinnar lögðu hald á hina vafasömu smokka í Rúmeníu, Serbíu og á Spáni.
Smokkarnir voru framleiddir í verksmiðju í Kína en merktir öðrum smokkaframleiðanda. Þeir voru að auki auðkenndir sem leikföng í flutningaskýrslum til að komast hjá eftirliti.
Yfirmaður eftirlitsstofnunarinnar sagði að falsaðir smokkar gætu verið varhugaverðir. Ekki væri búið að ganga úr skugga um að þeir væru öruggir og alls óvíst að þeir dygðu sem vörn gegn kynsjúkdómum og þungun.