Fjallað var um verkefnin í fréttum Sýnar en hluti af Boeing 757-flota Icelandair er rekinn í gegnum systurfélagið Loftleiðir Icelandic.
Þoturnar eru yfirleitt merktar þeim viðskiptavinum sem kaupa þjónustuna til leiguflugs, eins og National Geographic. Þá er gjarnan farið í lúxusferðir á framandi staði, meira að segja á Suðurpólinn.
En núna ætla Loftleiðamenn að sinna áætlunarflugi og það á fjölförnum flugleiðum.
„Við erum að fara að fljúga fyrir franskt flugfélag í sumar. Annars vegar allan júní og hins vegar allan september. Áætlunarflug á 52 sæta Boeing 757,“ segir Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic, hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Tveir leggir verða flognir; milli Parísar og New York og milli Mílanó og New York.
„Fimmtíu til sextíu fram og til baka flug í júní og eins í september.“
Í áætlunarflugi eru 184 sæti um borð í 757-þotum Icelandair. En í þessum ferðum fyrir La Compagnie verða eingöngu lúxussæti og með viðeigandi þjónustu.
„Þeir fljúga eingöngu á „bisnessklassa“ vélum á milli Evrópu og New York. Þannig að þetta er þeirra módel og við erum bara að hjálpa þeim,“ segir Árni.
Í vetur hafa Loftleiðir flutt knattspyrnulið í leiki vegna Meistaradeildar Evrópu. Frægar fótboltastjörnur verða einnig um borð í sumar.
„Við fljúgum með nokkur landslið á HM í sumar. Við höfum á undanförnum mánuðum verið mjög aktívir í að fljúga með bæði félagslið og landslið í svona stuttar ferðir. Við höfum verið með flest stærstu liðin í Englandi.“
-Verðið þið með íslenskar áhafnir að einhverju leyti?
„Eingöngu, já. Það eru flugmenn og flugfreyjur, eða flugliðar,“ svarar framkvæmdastjóri Loftleiða.