Loftferðasamningurinn milli Íslands og Suður-Kóreu hefur öðlast gildi eftir að bæði ríkin staðfestu samninginn í samræmi við ákvæði hans um gildistöku. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðs Íslands.
Þar segir að loftferðasamningurinn sé til þess fallinn að efla tengsl ríkjanna og flugsamgöngur þeirra á milli. Hann tók formlega gildi 17. apríl.
Högni S. Kristjánsson, sendiherra Íslands í Noregi, og Minjeong Seo, sendiherra Kóreu í Noregi, undirrituðu samninginn í Osló 3. desember 2025. Hann kveður á um gagnkvæm réttindi ríkjanna og tekur til áætlanaflugs á milli þeirra á tilteknum flugleiðum.
„Loftferðasamningar eru mikilvægir viðskiptasamningar sem tryggja flutninga fólks og farms til og frá Íslandi og greiða aðgang íslenskra flugrekenda að alþjóðamörkuðum,“ segir á vef Stjórnarráðsins.
„Með samningnum er komið á skýrum og heildstæðum reglum sem auðvelda þróun flugsamgangna milli Íslands og Kóreu og styðja við áframhaldandi eflingu viðskiptatengsla milli ríkjanna.“