Í kvöldfréttum Sýnar var sent út beint frá gulrótaakrinum og rætt við garðyrkjubóndann Ólínu Ingibjörgu Jóhannesdóttur, sem búsett er á bænum Brúarlandi 2 við bakka Hafralónsár skammt utan Þórshafnar.
„Jú. Þetta er stærsti lífræni gulrótaakur landsins. Hann er 1,67 hektarar,“ segir Ólína.
Í fyrra fékk hún metuppskeru af akrinum, 83 tonn. Hún býst þó við að magnið verði minna í ár, kannski milli 50 og 60 tonn.
Í sjónvarpsfréttinni kíkti hún undir grösin og taldi það sem hún sá líta vel út. Gulræturnar eiga þó enn eftir að vaxa talsvert í moldinni en hún gerir ráð fyrir að þær verði teknar upp á tímabilinu frá 10. til 15. september.
Enginn tilbúinn áburður er notaður heldur sérframleiddur áburður frá Ísfélagi Vestmannaeyja á Þórshöfn, sem er loðnumjöl. Þá eru engin eiturefni notuð heldur var allur arfi handtíndur, sem kallaði á mikinn mannskap í sumar, eins og heyra má hér: