Ljósmyndin af Helga og Þórði Snæ í síma skipstjórans

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Nútíminn birtir ljósmynd sem fer i annála. Á myndinni eru Helgi Seljan fréttamaður RÚV og Þórður Snær Júlíusson, fyrrum ritstjóri Kjarnans/Heimildarinnar og nú framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar. Fleiri blaðamenn eru á myndinni, vinnufélagar tvímenninganna. Ljósmyndin staðfestir að blaðamenn höfðu í fórum sínum gögn úr síma Páls skipstjóra Steingrímssonar stuttu eftir að honum var byrlað og símanum stolið.
Látum Þórð Snæ lýsa ljósmyndinni. Í frétt 22. maí 2021 skrifar hann:
Í gögnunum sem Kjarninn hefur undir höndum er meðal annars að finna Excel-skjal þar sem hluti starfsmanna RÚV, Stundarinnar og Kjarnans eru skráðir og ætluð tengsl þeirra á milli greind. Þá er mynd sem tekin er af samfélagsmiðli þar sem hópur fjölmiðlafólks sem starfar á mismunandi miðlum situr saman á sumarkvöldi að finna í gögnunum ásamt greiningu á fólkinu og hvernig megi tortryggja tengsl þess. (feitletr. pv)
Frétt ritstjóra Kjarnans er önnur í röðinni um ,,skæruliðadeild Samherja." Daginn áður, 21. maí 2021, birtist fyrsta fréttin.
Páli skipstjóra var byrlað heima hjá sér 3. maí 2021. Hann var meðvitundarlaus til 6. maí. Á þeim tíma var sími hans afritaður. ,,Gögnin" sem Þórður Snær vísar í eru úr síma skipstjórans.
Hvernig vitum við það? Jú, takið eftir feitletruðu setningunni hér að ofan. Talað er um ljósmynd af fjölmiðlafólki á sumarkvöldi ,,ásamt greiningu á fólkinu."
Páll skipstjóri hafði fengið myndina senda frá vini á Facebook. Skipstjórinn skrifaði sjálfur ,,greininguna á fólkinu" inn á myndina og sendi vinkonu sinni Ingunni Björnsdóttur í október 2020. Myndin af fjölmiðlafólkinu með athugasemdum skipstjórans var aðeins til hjá honum sjálfum og Ingunni.
Ljósmyndin kom fyrir almenningssjónir í síðustu viku er Ingunn birti hana á Facebook síðu sinni og vakti athygli á frétt Þórðar Snæs frá 22. maí 2021.
Í yfirheyrslum lögreglu vegna byrlunar- og símamálsins þvertók Þórður Snær fyrir að hafa nokkru sinni séð eða heyrt um síma Páls skipstjóra eða gögn úr símanum. En það er öðru nær. Ritstjórinn hefur í tvígang auglýst að myndir af honum sjálfum eru í ,,gögnunum" les: síma skipstjórans.
Í fyrstu fréttinni sem Þórður Snær birti um ,,skæruliðadeild Samherja" segir hann í skýringu í lok fréttar:
Ritstjóri Kjarnans er auk þess á meðal þeirra sem eru til umfjöllunar í samtölum sem má finna í þeim gögnum sem þessi fréttaskýring byggist á. Þá er að finna mynd af honum í gögnunum og skjal þar sem flestir starfsmenn Kjarnans eru upptaldir. (feitletr. pv)
Þórður Snær er svo upptekinn af sjálfum sér að hann endurtekur sama hlutinn í tveim fréttum, 21. og 22. maí 2021, að í gögnunum sé mynd af honum sjálfum. Ritstjóri Kjarnans sakbendir á sjálfan sig. Ljósmyndin og játning Þórðar Snæs í tvíriti staðfestir að gögn úr síma skipstjórans voru í höndum blaðamanna rétt eftir byrlun og þjófnað.
Þórður Snær vissi að lögbrot var framið til að sími skipstjórans kæmist í hendur blaðamanna. Í fréttinni frá 21. maí 2021 skrifar ritstjóri Kjarnans:
Ábyrgðarmenn Kjarnans vilja taka fram að umrædd gögn sem eru grundvöllur umfjöllunar miðilsins bárust frá þriðja aðila. Starfsfólk Kjarnans hefur engin lögbrot framið
Núverandi framkvæmdastjóri Samfylkingar, téður Þórður Snær, er þeirrar skoðunar að lögbrot sé ekki eitthvað sem menn eiga að upplýsa, heldur hylma yfir og græða á. Þórður Snær fékk blaðamannaverðlaun ársins 2021 fyrir fréttir með vísun í síma skipstjórans.
Helgi Seljan fréttamaður er með ritstjóra Kjarnans á ljósmyndinni. Byrlunarvorið 2021 gat Helgi ekki haft sig í frammi. Fáeinum vikum áður fékk Helgi á sig siðadóm RÚV vegna Namibíumálsins. Síkvikur Helgi sást ekki fyrir framan myndavélarnar vorið fyrir fimm árum. Hann starfaði á bakvið tjöldin. Sími skipstjórans kom í hús á Efstaleiti 4. maí. Einhver þurfti að róta sig í gegnum einkagögn skipstjórans. Helgi þekkir hégóma framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingar. Er Þórður Snær sá myndina af sjálfum sér í síma skipstjórans fékk hann ekki við sig ráðið. Hann bókstaflega varð að geta myndarinnar i fréttum Kjarnans. Ekki einu sinni heldur tvisvar.
Uppljóstrun byrlunar- og símamálsins miðar hægt. En örugglega.

Skjáskotið, úr samtali Páls skipstjóra og Ingunnar Björnsdóttur, sem fjallað var um í Kjarnanum í maí 2021.