Þorgerður Katrín lét þessi orð falla í viðtali í Kastljósi í kvöld.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti sem er jafnframt orðinn eitt af andlitum nei-hreyfingarinnar, hafði sagt í viðtali í Spursmálum á mbl.is á föstudag að ekki væri hægt að líta á utanríkisráðuneytið sem „sjálfstæðan matsaðila“ í málefnum atkvæðagreiðslunnar, heldur væri það orðið að „áróðursdeild“.
„Það er bara því miður þannig,“ sagði Ólafur í Spursmálum. Vísaði hann meðal annars til skrifa Gunnars Braga Sveinssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem hafði sagt utanríkisráðuneytið hafa synjað sér um aðgang að um hundrað skjölum úr ráðherratíð Gunnars.
Leit að Ólafur skuli draga starfsfólk ráðuneytisins
Innt var eftir viðbrögðum Þorgerðar við þessu í Kastljósi í kvöld.
„Mér finnst leitt að af því að Ólafur Ragnar er ekki sammála mér í pólitík, að hann skuli draga þá allt það hæfa starfsfólk utanríkisráðuneytisins sem sinnir sínu starfi af mikilli natni, þekkingu og reynslu,“ brást hún við.
„Og þetta er að einhverju leyti einsdæmi að fyrrum forystumaður Íslands skuli vera að tala niður íslenska stjórnsýslu. Ég lít þetta mjög alvarlegum augum,“ hélt hún áfram og bætti við:
„Það er allt annað að vera ósammála mér í pólitík, en mér finnst vont þegar framamaður – eins og kom fram í Sprengisandi í gær hjá Guðna Th. [Jóhannessyni, fyrrverandi forseta] þegar hann bendir réttilega á að þeir sem hafa verið forystumenn í íslensku samfélagi og hafa frekar greiðan aðgang að míkrófóni – þeir bera líka ábyrgð. Ég kalla eftir því að allt forystufólk, líka fyrri tíma, nálgist þetta verkefni af auðmýkt og virðingu ekki síst fyrir íslensku þjóðinni.“