Gömlu lýsistankarnir á Raufarhöfn eru að verða tilbúnir fyrir listsýningar. Einstakur hljómgrunnur er í tönkunum þar sem endurbætur hafa staðið yfir í nokkur ár.
„Lýsistankarnir sem voru byggðir 1938-40 og voru í notkun til 2005, að ég held frekar en 2003 fyrir lýsi, það er verið að breyta þeim í listatanka,“ segir Ásdís Thoroddsen, kvikmyndagerðarmaður á Raufarhöfn.
Hugmyndin kviknaði 2021 og ef allt gengur eftir verða til tvö glæsileg rými fyrir ýmsar listsýningar. Framkvæmdir ganga hægt en örugglega enda mikið verk. Fjármagn kemur frá innviðaráðuneytinu og ætti að duga til að ljúka endurbótum.
„Það var ég sem óvart spurði, hvað á að gera við lýsistankana. Já, og fartölvan, þá sækirðu um þarna og þarna, áður en ég vissi af var ég kominn með tvo lýsistanka á mína ábyrgð. Þannig gerðist þetta. Það er dálítið skemmtilegur hljómburður hérna, hann er mikill, það er mikið bergmál. Hann er ekki eins skýr og í kirkju, þar eru aðrir galdrar í gangi, en samt sem áður mjög fallegt,“ segir Ásdís.
Smiður og myndlistarmaður
Smiðurinn sem sér um endurbæturnar á tönkunum heitir Pétur Örn Friðriksson og er einnig myndlistarmaður. Hann hefur nú þegar sett upp tvær sýningar í tönkunum:
„Upphaflega átti bara að vera sýning hér en ég splittaði henni upp og breytti henni því það er svo mikil fyrirferð í þessum smiðum. Hér er hljóðmynd úr verksmiðju, hér er nýfarin verksmiðja og ómur af verksmiðju inni í tankinum. Svo er hérna fley sem ég er að setja saman í síðasta skipti,“ segir Pétur. Í hinum tanknum er Pétur einnig með sýningu sem hefur vakið mikla athygli.
„ Í rauninni verk sem ég gerði svona lítið og stækkaði upp núna. Ég er bara að máta þetta, þetta er eins og með tónlist. Maður flytur hana aftur í öðru rými og verk mín eru mjög mikið þannig, þetta eru element sem ég er að þvælast mjög mikið með. Þetta er bara eins og þetta var hérna, þetta er bara pollur með rigningarvatni og möl sem var komið með hérna inn. Ég geri í raun ekkert nema að setja upp skúlptúr inn í rýmið.“