„Þarna er farið yfir ákveðið strik, þetta hefur aldrei gerst áður,“ segir Bjartmar Leósson, sem þekktur er fyrir baráttu sína gegn þjófnuðum og eljusemi og útsjónarsemi við að enduheimta þýfi og koma í hendur eigenda sinna, ekki síst reiðhjólum, í samtali við DV. Maður sem hefur horn í síðu Bjartmars vegna þessarar baráttu, vatt sér að honum fyrir utan mathöllina á Hlemmtorgi í gærkvöld og rak honum bylmingshögg í hnakkann.
Líkamsárás á Bjartmar hjólahvíslara – „Ég vona innilega að þessi maður nái bata“