Líkam­lega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði - Vísir

Líkam­lega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði - Vísir

Líkam­lega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði - Vísir

Hrefna Björg er fædd árið 1995 og starfar sem stefnustjóri Veitna. Jóhannes Páll er fæddur árið 1992 og starfar sem deildarstjóri gagna og gervigreindar hjá Icelandair. Hjúin hafa verið saman í tvö og hálft ár og byrjuðu að skipuleggja stóra daginn fyrir um hálfu ári síðan. Blaðamaður ræddi við Hrefnu um brúðkaupið.

Dagurinn var draumur hjá hjónunum.Blik studio

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Í nóvember 2025. Við fórum á Græna Drykki, sem er viðburður fyrir fólk að ræða umhverfis- og loftlagsmál, og svo út að borða á Skál. Ég var að fagna útgáfu handbókarinnar minnar fyrir sjálfbærnileiðtoga. 

Jói hafði hugsað sér að biðja mín á leiðinni á Skál, en ég bauð auðvitað Lísu vinkonu að vera með okkur svo hann beið þangað til við vorum heima bara tvö. Hann bað mín á eldhúsgólfinu meðan ég var að hella upp á te.

Jói bað Hrefnu á eldhúsgólfinu heima.Blik studio

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við byrjuðum að láta okkur dreyma og leggja pening til hliðar um leið og við trúlofuðumst, svo undirbúningurinn var hálft ár.

Hjónin voru í hálft ár að undirbúa stóra daginn og voru ákveðin í að gifta sig í sveit.Blik studio

Hvar hélduð þið brúðkaup? 

Við vildum bæði íslenskt sveitabrúðkaup. Jóa langaði að gifta sig í Skagafirði þaðan sem hann er ættaður. Við ákváðum því að halda athöfnina nálægt Varmahlíð og veisluna í Miðgarði í Varmahlíð. Svo það var auðveld ákvörðun.

Veislan var í Varmahlíð og fjörið byrjaði snemma.Blik studio

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Við gerðum okkur til nálægt Varmahlíð. Hafdís frá Medulla á Akureyri sá um hár og Tóta vinkona mín um förðun. Við drukkum mímosur, borðuðum sjónvarpsköku og pósuðum fyrir Daníel, ljósmyndarann.

Margir gestirnir fóru í sund í Varmahlíð um morguninn og gerðu sig til þar. Gestir mættu svo í Miðgarð í Varmahlíð þar sem rútur ferjuðu í athöfnina. Þar var fordrykkur og svo gaf Júlíanna vinkona okkur saman.

Rúturnar fóru svo með gestina aftur í Miðgarð í Varmahlíð þar sem Austan Vatna voru með snyttur, forrétt og aðalrétt, en maturinn var allir úr sveitinni. Mamma og Ragna, móðursystir mín, sáu um desertinn en það var tiramisu og limoncello tiramisu.

Athöfnin og veislan voru haldin í Miðgarði.Blik studio

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Við vorum með kvöldvöku kvöldið áður, á Kaffi Krók á Sauðárkróki. Einar vinur okkar hélt líka pub quiz og Ingi vinur okkar stýrði samsöng. Þetta bjó til nána og ljúfa stemningu innan hópsins og var ótrúlega yndisleg byrjun á helginni. Svo var sundferð morguninn fyrir brúðkaupið í sundlauginni í Varmahlíð.

Hrefna og Jói skipulögðu kvöldvöku fyrir brúðkaupið sem þjappaði gestum saman.Blik studio

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Ég hélt einhvern veginn alltaf að ég myndi plana mitt eigið brúðkaup því ég er oft með sterkar skoðanir á því hvernig ég vil hafa hlutina. Mér fannst svo skemmtilegt hvað Jói var það líka með sterkar skoðanir, þá sérstaklega á stóru atriðunum, mat, staðsetningu og þess háttar.

Ég einbeitti mér því að hinum atriðunum; skreytingum, ljósmyndun, tónlist, boðskortum og leikjum. Við erum með svipaðan smekk, sem gerði undirbúninginn mjög einfaldan og skemmtilegan. Við erum hins vegar bæði í fullu starfi, íþróttum og og ég í meistaranámi svo við skipulögðum okkur vel, notuðum Asana og Excel og unnum þetta bara eins og fyrirtæki.

Hjónin voru bæði með skipulagið á lás og ráku undirbúninginn eins og fyrirtæki.Blik studio

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Okkur fannst mikilvægt að undirbúningurinn væri hluti af upplifuninni. Æfa fyrsta dansinn, smakka matinn hjá kokkunum, vera með vínsmökkun og ræða hvað það er sem gerir viðburði og partý eftirminnileg fyrir okkur.

Ég fékk mikla hjálp frá vinkonum, við kjólaleit og gerð á nafnspjöldum til dæmis. Ég átti líka nokkur kaffideit með Júlíönnu vinkonu minni að skoða blóm og skreytingar en hún er mikil listakona og ég treysti hennar innsæi.

Við Jói byrjuðum á því að búa til brúðkaupslagalista sem við hlustuðum á meðan við vorum að undirbúa viðburðinn en erum komin með ógeð á honum í dag hins vegar. Við erum líka heppin með vini sem gerðu stórkostlega steggjun og gæsun sem skapaði stemningu fyrir brúðkaupinu sjálfu.

Undirbúningurinn var vel þess virði en Hrefna og Jói nutu hvers skrefs í honum.Blik studio

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Ég lærði viðburðarstýringu í Kaospilot og notaði tól sem ég lærði þar, the five E model (excitement, entry, engagement, exit, extension). Það hjálpar við að búa til upplifun sem fólk man eftir. 

Við einbeittum okkur að því að gera boðskort sem fangaði viðburðinn, notuðum myndaappið Once sem gaf gestunum aðgang að myndum hvers annars og gerðum bingóspjöld til þess að virkja borðin og hjálpa fólki að kynnast. Það gekk svo vel að vinningarnir kláruðust á fyrstu tíu mínútunum.

Bingóspjöldin settu tóninn fyrir kvöldið og gestir voru í gríðarlegum gír.Blik studio

Hvað stendur upp úr?

Það var berskjaldandi að lesa heitin okkur fyrir framan gestina. Það endaði þó á að vera uppáhalds augnablikið okkar og tilfinning sem við munum alltaf hugsa til hlýlega. Dansstemningin sem myndaðist á kvöldvökunni stendur líka upp úr og gerði okkur spennt fyrir brúðkaupinu.

Það var rosaleg dansstemning fram á nótt!Blik studio

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Júlíanna vinkona gaf okkur saman. Hún var með rauðan þráð sem öll í athöfninni þræddu hringinn í gegnum til að tákna rauða þráðinn í gegnum lífið, sem er fólkið okkar. Það var mjög hjartnæmt.

Lyrika, accapella hljómsveit systur minnar og Anna Elísabet og Hjörtur strengjaleikarar spiluðu Before I knew you með Ben Platt sem inngöngulag og síðar sérstaka útgáfu af Undir þínum áhrifum með Sálinni, sem Gígja systir útsetti fyrir daginn. Það var svo fallegt að við grenjuðum öll úr okkur augun.

Jara og Móa vinkonur okkar voru veislustjórar og voru algjörlega stórkostlega fyndnar og vel skipulagðar. Við dönsuðum svo útí nóttina undir Danssveit Dósa og við Gígja systir tókum lagið með þeim. Vinir okkar, Sverri og Orra sem þeyttu svo skífum langt fram á nótt.

Danssveit Dósa lék fyrir dansi.Blik studio

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Það kom mér á óvart hvað það tekur líkamlega á að gifta sig, þú ert mikið að lyfta freyðivínskössum, klifra upp í stiga til að skreyta, dansa fram á nótt, vakna snemma með freyðivínshausverk og kremjuknúsa alla. 

Við vorum líkamlega lemstruð eftir daginn og fötin í rústi, en það var allt þess virði.
Það tók líkamlega á að halda brúðakaup en allt var vel þess virði að sögn Hrefnu.Blik studio

Hvað voru margir gestir?

150.

150 gestir fögnuðu brúðhjónunum.Blik studio

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Ég elska að kaupa notuð föt svo ég skoðaði það sem verið var að selja á Facebook og keypti kjólinn af stelpu þaðan. Mig langaði að vera með skemmtilegt slör og sérpantaði hjá Sigríði Ágústu. Skórnir voru valdir með þægindi í huga en þetta voru þykkbotna Bianco skór úr kaupfélaginu.

Jói var í gömlum Hugo Boss jakkafötum af pabba sínum með sérpantaða slaufu sem hann keypti af Etsy.

Kjóllinn hennar Hrefnu var keyptur á Facebook og slörið sérhannað af Sigríði Ágústu.Blik studio

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Að hugsa um það sem gerir sambandið ykkar einstakt og hvað það er sem ykkur finnst skemmtilegt í brúðkaupi og nota það til þess að búa til viðburð sem er persónulegur en líka skemmtilegur.

Sömuleiðis að gera allar klisjurnar; fyrsta dans, skera kökuna, skrifa og fara með heitin! Margir gestirnir höfðu orð á því hvað það hafi verið skemmtilegt. Eina sem ég sé eftir er að hafa ekki kastað vendinum.

Eina eftirsjá Hrefnu er að hafa ekki kastað vendinum.Blik studio

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Virkilega ljúf. Við erum að skoða myndirnar og rifja upp fyndnar sögur frá kvöldinu með fólkinu okkar. Svo eigum við eftir að taka brúðkaupsferð á næsta ári til að fagna enn meira.

Hjónin segja lendinguna eftir brúðkaupið ljúfa og minningarnar lifa um ókomna tíð. Þau ætla svo í brúðkaupsferð á næsta ári.Blik studio
#fötin #lemstruð #líkamlega #rúst #vel


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262916765d/likam-lega-lemstrud-og-fotin-i-rust-en-vel-thess-virdi

📰 Aðrar fréttir

Yung Filly: British rapper to face eight-day retrial in June 2027
📅 25.09.2026 👁️ 2
Yung Filly: British rapper to face eight-day retrial in June 2027
Andres Felipe Valencia Barrientos was cleared of several sexual offences in July but a jury was undecided on three rape charges.
Fyrsta opinbera heimsókn páfa til Frakklands í 18 ár
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fyrsta opinbera heimsókn páfa til Frakklands í 18 ár
Leó páfi heldur til Parísar í dag í fyrstu opinberu heimsókn páfa til Frakklands í 18 ár. Kirkjuklukkur hringja í sjö mínútur í kirkjum landsins þegar...
Miliband tells Iran minister UK will not tolerate 'hostile activity' on British soil
📅 25.09.2026 👁️ 2
Miliband tells Iran minister UK will not tolerate 'hostile activity' on British soil
The foreign secretary stresses "the UK's unwavering resolve to combat threats from Iranian-linked groups in UK soil, including attacks on the British ...
Watch: The world’s two most powerful men just met. How did it go?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Watch: The world’s two most powerful men just met. How did it go?
The BBC’s China correspondent Laura Bicker unpacks how the trip panned out for Beijing and Washington.
„Endurheimt votlendis er efst á listanum“
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Endurheimt votlendis er efst á listanum“
Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi í fyrra, 2025, var 10,6 milljónir tonna af CO2-ígildum, sem er 3,9 prósentum minna en 2024 en þó tveimur ...
Gular viðvaranir á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gular viðvaranir á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra
Gul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum til klukkan 15:00 síðdegis í dag.Veðurstofan varar við norðaustan 15-23 m/s og vindhviðum staðbundið yfir 3...
Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn þegar Netanja­hú steig í ræðu­stól - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn þegar Netanja­hú steig í ræðu­stól - Vísir
Þetta segir Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hún hafi þess í stað verið á viðburði til stuðnings Palestínu-flóttamannahjálpar...
Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn með hinum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn með hinum - Vísir
Þetta segir Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hún hafi þess í stað verið á viðburði til stuðnings Palestínu-flóttamannahjálpar...
Hnífaárás í Benediktínarklaustri
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hnífaárás í Benediktínarklaustri
Prestur var drepinn og fjórir eru særðir eftir hnífárás í Benediktínarklaustri í Jarosław, suðaustur Póllandi í morgun.Pólska ríkisútvarpið greinir fr...
Hnífaárás í Benediktínaklaustri
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hnífaárás í Benediktínaklaustri
Prestur var drepinn og fjórir eru særðir eftir hnífárás í Benediktínaklaustri í Jarosław, suðaustur Póllandi í morgun.Pólska ríkisútvarpið greinir frá...
Meira um krabba­mein hjá yngra fólki sem þurfi að fylgast með vissum ein­kennum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 3
Meira um krabba­mein hjá yngra fólki sem þurfi að fylgast með vissum ein­kennum - Vísir
Svo hljóða niðurstöður nýrrar rannsóknar í læknaritinu The Lancet sem gefa til kynna að tíðni umræddra krabbameina hafi vaxið hraðar hjá yngri aldursh...
Meira um krabba­mein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Meira um krabba­mein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku - Vísir
Svo hljóða niðurstöður nýrrar rannsóknar í læknaritinu The Lancet sem gefa til kynna að tíðni umræddra krabbameina hafi vaxið hraðar hjá yngri aldursh...
UK summer 2026: BBC postcode lookup shows how hot and dry it was
📅 24.09.2026 👁️ 3
UK summer 2026: BBC postcode lookup shows how hot and dry it was
Most of us experienced drought and heatwaves - but temperatures and rainfall were not the same everywhere.
New policies, election speculation: What to expect from Burnham's first Labour conference as PM
📅 24.09.2026 👁️ 3
New policies, election speculation: What to expect from Burnham's first Labour conference as PM
Andy Burnham is under pressure to deliver a compelling vision for the country as he steps from the sidelines on to the main stage.
Brain tumour diagnosis cut from weeks to hours with rapid new NHS test
📅 24.09.2026 👁️ 3
Brain tumour diagnosis cut from weeks to hours with rapid new NHS test
The test means patients can start treatment sooner and are spared weeks of uncertainty.
Hundreds of thousands expected in Paris for Pope Leo's visit
📅 24.09.2026 👁️ 3
Hundreds of thousands expected in Paris for Pope Leo's visit
The highpoint of his time in Paris will be a giant Mass attended by more than half a million people.
Hollywood-stjörnur handteknar á mótmælum gegn Netanjahú
📅 24.09.2026 👁️ 4
Hollywood-stjörnur handteknar á mótmælum gegn Netanjahú
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hélt ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld.Framferði Ísraels á Gaza hefur verið mótmælt í New ...
Fyrirskipuðu flutning á gröfum gyðinga í Tælandi – „Ef þið ætlið að deyja, deyið heima hjá ykkur“
📅 24.09.2026 👁️ 5
Fyrirskipuðu flutning á gröfum gyðinga í Tælandi – „Ef þið ætlið að deyja, deyið heima hjá ykkur“
Tælensk yfirvöld hafa fyrirskipað brottflutning grafa úr sérstökum minningarreit gyðinga nálægt Bangkok. Forsætisráðherrann segir að útlendingar verði...
Kalla eftir því að fleiri fyrirtæki leggi hönd á plóg
📅 24.09.2026 👁️ 5
Kalla eftir því að fleiri fyrirtæki leggi hönd á plóg
Nú styttist óðum í áttunda október en þá rennur út frestur til að segja upp nú núverandi kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Ásta S. Fjeldsted for...
Stolt af viðbrögðum Kanadamanna og sniðgengur bandarískar vörur
📅 24.09.2026 👁️ 5
Stolt af viðbrögðum Kanadamanna og sniðgengur bandarískar vörur
Samband Kanada og Bandaríkjanna hefur tekið gríðarlegum breytingum á skömmum tíma. Samþætting og nágrannakærleikur hafa mikið til vikið fyrir tollastr...
Netanyahu defends Israeli military action as delegates walk out before UN speech
📅 24.09.2026 👁️ 4
Netanyahu defends Israeli military action as delegates walk out before UN speech
The Israeli leader labels those who left his speech at the UN General Assembly as "moral cowards". 
Tugir full­trúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 5
Tugir full­trúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls - Vísir
Mótmælin hófust um leið og Netanjahú gekk að ræðustólnum. Fulltrúar fjölmargra ríkja risu úr sætum sínum. Á meðan heyrðust bæði mótmælaköll og fagnaða...
Egill Örn spilaði með 40 stiga hita fyrir Dennis Rodman – „Kláraði síðasta lagið, ældi á sviðið og bara borinn úti í bíl“
📅 24.09.2026 👁️ 4
Egill Örn spilaði með 40 stiga hita fyrir Dennis Rodman – „Kláraði síðasta lagið, ældi á sviðið og bara borinn úti í bíl“
Trommuleikarinn Egill Örn Rafnsson hefur átt feril sem inniheldur allt frá Grafík og Sign, tónleika fyrir tugþúsundir, fimm ár í London, tónleikaferða...
„Það er skil­greiningin á því að pissa í skóinn sinn“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 3
„Það er skil­greiningin á því að pissa í skóinn sinn“ - Vísir
Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mættust í Pallborðinu á Vísi í dag. Fresturinn til að s...
Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 3
Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða - Vísir
Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að Reykjavíkurborg greiði Sorpu í ár 78 milljónir vegna sorps sem er skilið eftir við grenndarstöðvar og þarf...
Anti-migrant activist Daniel Thomas charged after dinghy slashed in Channel
📅 24.09.2026 👁️ 4
Anti-migrant activist Daniel Thomas charged after dinghy slashed in Channel
Anti-migrant activist Daniel Thomas is charged in connection with an incident in the English Channel.
Áhættumat íslenska ríkisins endurskoðað í ljósi ógna Rússa
📅 24.09.2026 👁️ 4
Áhættumat íslenska ríkisins endurskoðað í ljósi ógna Rússa
Áhættumat íslenska ríkisins verður endurskoðað í ljósi nýrra frétta frá Danmörku um að danski herinn ætli að auka viðbúnað vegna ógna frá Rússum. Dani...
Hvað veistu um… kvik­mynda­hátíðir? - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 5
Hvað veistu um… kvik­mynda­hátíðir? - Vísir
Þær gefa áhorfendum jafnframt tækifæri til að sjá fjölbreyttar myndir sem ekki rata alltaf í almennar kvikmyndahúsasýningar. Reykjavík International F...
Risauppbygging á Völlunum í Hafnarfirði fellur í grýttan jarðveg – „Það verður erfitt að losa sig héðan“
📅 24.09.2026 👁️ 5
Risauppbygging á Völlunum í Hafnarfirði fellur í grýttan jarðveg – „Það verður erfitt að losa sig héðan“
Uppbygging 260 íbúða fyrir tímabundna búsetu á Völlunum sem Hafnarfjarðarbær tilkynnti hefur fallið í grýttan jarðveg hjá íbúum í hverfinu. Hrundið he...
Lögregluembættum fækkað úr níu í þrjú
📅 24.09.2026 👁️ 5
Lögregluembættum fækkað úr níu í þrjú
Dómsmálaráðherra kynnti í dag áform um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Hún stefnir á að leggja fram frumvarp þess efnis á Alþingi í nóvember,...
„Mis­tök að fela honum for­ystu“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 5
„Mis­tök að fela honum for­ystu“ - Vísir
Guðmundur skrifar þetta í færslu á Facebook í kvöld í tilefni af umræðu um brotthvarf ráðherrans fyrrverandi úr ríkisstjórn. Hann  leiddi lista Flokks...
Svepparisi fannst í Heiðmörk
📅 24.09.2026 👁️ 5
Svepparisi fannst í Heiðmörk
Edyta Wyrzykowska átti ekki von á því að koma heim með tæplega þriggja kílóa kóngssvepp þegar hún fór í göngutúr í Heiðmörk. Sveppurinn er 38 sentímet...
„Þarna sést samt þetta eðli Flokks fólksins“
📅 24.09.2026 👁️ 5
„Þarna sést samt þetta eðli Flokks fólksins“
Það er ekki óvanalegt að það gangi á ýmsu bak við tjöldin í stjórnmálum. Eðli Flokks fólksins kom hins vegar skýrt fram í skilaboðum sem Guðbjörg Ingu...
„Hinn fullkomni stormur“
📅 24.09.2026 👁️ 5
„Hinn fullkomni stormur“
„Alþjóðapólitísk áhætta er mikil og horfur í efnahagsmálum á heimsvísu eru óvissar,“ segir í Fjármálastöðugleika, nýjasta riti Seðlabanka Íslands. Þeg...
Safnað fyrir lækningaferð Lilju Grétu: Veikindin setja mark sitt á alla fjölskylduna – „Þetta er bara orðið rosalega erfitt líf“
📅 24.09.2026 👁️ 6
Safnað fyrir lækningaferð Lilju Grétu: Veikindin setja mark sitt á alla fjölskylduna – „Þetta er bara orðið rosalega erfitt líf“
Vinir Lilju Grétu Norðdahl, þriggja barna móður og eiginkonu á Akranesi, hafa sett af stað söfnun til að gera henni kleift að fara í meðferð á Írlandi...
Villi Neto í uppreisn gegn gervigreind: „Ég vil ekki nota hana. Punktur.“
📅 24.09.2026 👁️ 6
Villi Neto í uppreisn gegn gervigreind: „Ég vil ekki nota hana. Punktur.“
Leikarinn, grínistinn og tónlistarmaðurinn Villi Neto tekur skýra afstöðu gegn notkun gervigreindar í listsköpun í nýjum þætti Gervigreindarklúbbsins....
Kristrún segist ekki hafa þrýst á Guðmund Inga að segja af sér
📅 24.09.2026 👁️ 6
Kristrún segist ekki hafa þrýst á Guðmund Inga að segja af sér
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafnar því að hafa þrýst á Guðmund Inga Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, að segja sig frá r...
„Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 5
„Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ - Vísir
Jón Áki Jensson geðlæknir tók við af Valgerði Rúnarsdóttur sem framkvæmdastjóri lækninga en hún sagði starfi sínu lausu eftir brotthvarf Ragnheiðar Hu...
Upp­selt á opnunarmyndina í tveimur sölum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 5
Upp­selt á opnunarmyndina í tveimur sölum - Vísir
Logi Már Einarsson, ráðherra menningarmála, setur hátíðina, sem er sú 23. í röðinni, í kvöld, og Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og tónlistark...
Watch: UN delegates walk out of Benjamin Netanyahu's speech
📅 24.09.2026 👁️ 5
Watch: UN delegates walk out of Benjamin Netanyahu's speech
The Israeli delegation could be be seen cheering in support during Netanyahu's speech.
Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hag­kaup á Eiðis­torgi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 6
Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hag­kaup á Eiðis­torgi - Vísir
Ríkisútvarpið hefur eftir sínum heimildum að maður á fimmtugsaldri hafi verið með hníf í versluninni. Hann hafi ekki hlýtt skipunum um að leggja hnífi...
Lög­reglu­em­bættum fækkað veru­lega - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 5
Lög­reglu­em­bættum fækkað veru­lega - Vísir
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra ...
Sex offender bailed to flat near playground
📅 24.09.2026 👁️ 6
Sex offender bailed to flat near playground
Victims of Zapher Dogen were living close to the 32-year-old, who admitted multiple offences.
Maður með hníf í Hagkaup á Eiðistorgi – Lögregla beitti rafbyssu
📅 24.09.2026 👁️ 6
Maður með hníf í Hagkaup á Eiðistorgi – Lögregla beitti rafbyssu
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu var lögr...
Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 5
Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk - Vísir
Fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að haft hafi verið samband við eigendur bílanna og tréð í kjölfarið fjarlægt. Í öðrum veðurtengd...
Guðmundur hristi höfuðið yfir orðum Ingu
📅 24.09.2026 👁️ 5
Guðmundur hristi höfuðið yfir orðum Ingu
Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherraembætti og umfjöllun RÚV þess efnis voru í brennidepli í upphafi óundirbúinna fyrirspurna á Alþingi í d...
'It has broken us as a family,' mother of poison seller victim tells hearing
📅 24.09.2026 👁️ 6
'It has broken us as a family,' mother of poison seller victim tells hearing
Tanya Whitaker broke down before she spoke of how her son Samuel's death had devastated her family.
Mikill vatnsstrókur í Mið­firði - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 5
Mikill vatnsstrókur í Mið­firði - Vísir
Veðurfyrirbæri þetta myndast víða í fjörðum landsins í miklu hvassviðri eins og var í dag. Að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings er um vatnsstr...
Rapper Macklemore announces 'Free Palestine' tour after Ed Sheeran fallout
📅 24.09.2026 👁️ 5
Rapper Macklemore announces 'Free Palestine' tour after Ed Sheeran fallout
Proceeds from the tour, which begins in Dublin next month, will go to organisations supporting Palestinians, he says.
Segir kjör Wolt-sendla skána á næstu fjórum til sex vikum
📅 24.09.2026 👁️ 6
Segir kjör Wolt-sendla skána á næstu fjórum til sex vikum
Gheorghe Mihai Cacaliceanu, talsmaður Wolt-sendla, segir fund þeirra með forsvarsmönnum fyrirtækisins hafa gengið vel í dag. Fundurinn hófst klukkan 1...