Nótt Jónsdóttir, 29 ára Hafnfirðingur, hefur undanfarin sex ár búið erlendis ásamt sambýlismanni sínum, handboltamanninum Sigvalda Guðjónssyni, og sonum þeirra tveimur, Jökli og Funa.
Hún er með B.A.-gráðu í lögfræði og var í meistaranámi í markaðsfræði þegar hún ákvað að láta gamlan draum rætast og stofna eigin verslun.
Hugmyndin að barnafataversluninni Uglu kviknaði eftir að Nótt varð mamma, en hún fann að ákveðið úrval vantaði í Þrándheimi þar sem fjölskyldan hafði komið sér vel fyrir.
Plönin tóku þó óvænta stefnu þegar ljóst varð að fjölskyldan væri á leið til Þýskalands vegna handboltans.
Hvernig kom það til að þú ákvaðst að opna verslunina Uglu í Þrándheimi?
„Hugmyndin kviknaði í raun út frá eigin þörfum. Eftir að ég eignaðist eldri son okkar áttaði ég mig á því að það voru nánast engar verslanir hér fyrir börn nema þessar klassísku stóru keðjur.
Mér fannst vanta ákveðið úrval af barnafatnaði sem ég sjálf var að leita að og fann líka að fleiri í kringum mig voru sammála. Út frá því fór ég að velta fyrir mér af hverju ég myndi ekki bara fara í það verkefni sjálf. Á þessum tíma var ég ólétt að öðru barninu okkar.
Það voru svo norskir vinir okkar hér úti sem komu inn í verkefnið með okkur og þá varð þetta að veruleika.
Planið var að byrja með netverslun samhliða fæðingarorlofi, en draumurinn var alltaf að opna fallega litla verslun hér í borginni.“
Hvers konar verslun átti Ugla að vera og hver var hugmyndin á bak við hana?
„Mig langaði að skapa hlýlega og persónulega verslun með vörum sem mér sjálfri finnst fallegar, tímalausar og vandaðar. Mér fannst líka mikið vanta strákaföt sem væru ekki bara bílar og risaeðlur.
Það er síðan mikil pæling á bak við Uglu-nafnið. Ugla er borið eins fram hér í Þrándheimi eins og á Íslandi og svo er líka hverfi hér sem heitir Ugla, sem mér fannst svolítið skemmtilegt. En fyrst og fremst fyrir mig er nafnið tenging við Ísland, náttúruna og gildin sem við viljum standa fyrir með versluninni.
Uglan táknar líka visku, umhyggju og að vaka yfir þeim sem manni þykir vænt um og mér fannst það því mjög viðeigandi fyrir barnafataverslun.
Planið var alltaf að selja skandinavískar vörur, þar á meðal íslenskar. Við höfum verið með flíkur frá Farmers Market frá upphafi og ég var komin í samband við fleiri íslensk vörumerki áður en plönin breyttust.
Við fengum líka æskuvin Sigvalda, Baldur, og kærustu hans, Alissa, með okkur í verkefnið. Þau hönnuðu lógóið og planið var að þau myndu síðan hanna verslunina sjálfa. Útlitslega konseptið (e. visual idendity) sem þau unnu fyrir Uglu er eitthvað sem ég hefði virkilega viljað sjá verða að veruleika – þau eru algjörir snillingar!“
Hvernig brástu við þegar það varð ljóst að flutningarnir til Þýskalands myndu breyta áformunum um Uglu?
„Það voru auðvitað smá vonbrigði. Ég hafði séð fyrir mér að geta byggt þetta áfram upp í Þrándheimi og vera hér lengur, enda var Sigvaldi með samning hér til 2030.
En lífið með atvinnuíþróttamanni getur breyst mjög hratt og ég var alveg meðvituð um þá áhættu þegar ég fór af stað með þetta verkefni.
Við höfum verið með pop-up verslanir hér og þar um bæinn sem gáfu mér smá tilfinningu fyrir því hvernig framhaldið gæti orðið. Áhuginn, eftirspurnin og viðbrögðin voru frábær.
Þrátt fyrir lokun hér er ég ótrúlega stolt af sjálfri mér fyrir að hafa farið í þessa vegferð, þótt hún hafi endað fyrr en ég hafði séð fyrir mér vegna flutninganna. Reynslan og allur lærdómurinn sem fylgdi þessu er eitthvað sem enginn getur tekið frá mér.
Það var greinilega ekki nóg fyrir mig að vera í nánast fullri vinnu hjá foreldrum mínum, með lítið barn og svo annað á leiðinni og ákveða líka að stofna fyrirtæki. Það er ekkert grín að stofna og reka fyrirtæki, hvað þá í landi sem maður er ekki frá á sama tíma og maður er með tvö lítil börn, og ömmur og afar á Íslandi.
En þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt, gefandi og auðvitað á köflum erfitt ferðalag. Ég dáist að öllum sem taka áhættuna og láta slíka drauma rætast, sama hvers konar fyrirtæki það er.“
Hafðirðu séð fyrir þér að vera lengur í Þrándheimi? Og hvað stendur helst upp úr eftir tímann þar?
„Já, algjörlega. Við höfðum séð fyrir okkur lengri tíma hér. Sigvaldi skrifaði undir sex ára samning í fyrra þannig að við sáum fram á lengri dvöl. Okkur hefur liðið ótrúlega vel í Þrándheimi og það er mjög gott að búa með börn hér.
Það sem stendur auðvitað mest upp úr eru strákarnir okkar, en þeir eru báðir fæddir hér. Við urðum í raun fjölskylda hér og það er eitthvað sem ég mun alltaf hugsa hlýtt til.
Við höfum líka eignast dýrmæta vini, bæði norska og íslenska, en það er ótrúlegt hvað Íslendingar finna alltaf hvort annað. Við munum alltaf eiga mjög einstakar minningar héðan.“
Hvernig er að festa rætur á nýjum stað þegar lífið tekur reglulega óvænta stefnu vegna atvinnuíþróttamennsku?
„Það kennir manni að vera sveigjanlegur. Ég reyni alltaf að líta á björtu hliðarnar og þau tækifæri sem þetta líf býður upp á – að kynnast nýrri menningu, tungumáli og fólki. Þetta er ákveðið ævintýri og reynsla sem maður hefði annars aldrei fengið.
En auðvitað getur verið erfitt að byrja alltaf upp á nýtt, sérstaklega þegar kemur að vinum og tengslaneti. Ég er mjög mikil félagsvera, þannig að það er mikilvægt fyrir mig að finna fólk í kringum mig sem ég tengi við og get hitt í kaffi eða boðið í mat.
En ég er líka mjög heppin með systur mína. Hún lifir sama lífi og ég, þannig að þótt við búum ekki í sama landi erum við í daglegu sambandi og skiljum hvað hin er að ganga í gegnum.“
Hvað tekur við hjá þér þegar þið komið til Þýskalands?
„Fyrst og fremst að koma okkur vel fyrir sem fjölskylda, koma strákunum inn í leikskóla og ná góðri rútínu.
Ég mun halda áfram að vinna hjá Hress Heilsurækt, en ég er svo heppin að geta unnið fyrir foreldra mína hvar sem ég er í heiminum.
Ég hef unnið þar samhliða því að stofna Uglu.
Ugla fær smá pásu á meðan við erum í Þýskalandi.“
Hvernig taka börnin í breytingarnar og flutningana?
„Þeir eru enn svo litlir að þeir eru ekki alveg að átta sig á hvað það þýðir að flytja. En við tölum mikið um Þýskaland og breytingarnar sem fram undan eru og þeir eru bara spenntir.
Þeir aðlagast þessu líklega betur en við. Aðalatriðið fyrir þá er að vera saman sem fjölskylda og hafa öryggi og rútínu í kringum sig.
Auðvitað verður söknuður að kveðja vini og umhverfið sitt hér í Þrándheimi, en því fylgir líka spenna fyrir nýju ævintýri.“
Sérðu fyrir þér að láta verslunardrauminn rætast síðar, þegar rétti tíminn kemur?
„Já, ég er alveg opin fyrir því.“




