Útileguþyrstir landsmenn ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi um allt land um helgina. Í Reykholti í Borgarfirði verður klassísk tónlistarhátíð, í þrítugasta sinn.
„Þetta er þrjátíu ára gömul hátíð, það er hátíðardagskrá svolítið því það er 30 ára afmæli. Þetta er dásamlegur bíltúr upp í Reykholt í Borgarfirði sem er alveg upplagt í þessu veðri sem er búið að lofa okkur,“ segir Þórunn Ósk Marínósdóttir, listrænn stjórnandi Reykholtshátíðarinnar.
Hvammstangi og Húsavík
Á Hvammstanga nær Eldur í Húnaþingi hámarki á laugardaginn en hátíðin hófst á mánudag. Búist er við fjölda gesta.
„Erfitt að segja en ég myndi ætla svona 5000 manns komi og renni í gegn og líti við. Fólk er svona aðeins að uppgvöta Hvammstanga. Við erum ekkert lengra frá en þetta og þetta er ekkert verra en eitthvað annað. Fólk tekur vel á móti þér og hér er allt til alls,“ segir Patrekur Óli Gústafsson, viðburðarstjóri Elds í Húnaþingi.
Á Húsavík hefjast Mærudagar formlega í kvöld. Forseti Íslands hefur boðað komu sína og stemningin í bænum er góð og von er á mörgum gestum.
„Já við eigum það. Það er búið að vera mikið af fólki í bænum undanfarnar vikur. Veðrið er ennþá, það er ekki skýhnoðri á himni. Það er til dæmis golfmót á morgun, krakkahlaup Íslandsbanka og froðurennibraut við sundlaugina. Það er mikil áhersla lögð á fjölskyldufólk á Mærudögum,“ segir Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings.
Bræðslan og Trilludagar
Á Borgarfirði eystri verður tónlistarhátíðin Bræðslan með þéttri dagskrá. Þar verða tónleikar bæði í kvöld og annað kvöld. Bræðslutónleikarnir sjálfir, á morgun, eru í beinni útsendingu á Rás 2.
Á Siglufirði fara síðan fram Trilludagar. Á morgun verður dagskrá frá morgni til kvölds við hafnarsvæðið þar sem gestir geta rennt fyrir fisk í trillum heimamanna og fengið hann grillaðan á höfninni.