Rússneskir fjölmiðlar greina frá því að Rita Flores, sem heitir réttu nafni Margarita Konovalova, hafi verið þvinguð til þess að vinna fyrir FSB eftir að útsendarar stofnunarinnar gerðu húsleit hjá henni árið 2023. Hún heldur því fram að henni hafi verið hótað því að verða drepin yrði hún ekki við kröfunni.
Því hafi Konovalova safnað upplýsingum um listamenn og aðgerðasinna fyrir rússnesk stjórnvöld. Hún segir að FSB hafi meðal annars reynt að bendla hana við ráðabrugg um að ræna og myrða einn stofnenda Pussy Riot sem ekkert varð síðan úr.
Sænska ríkisútvarpið segir að Konovalovu hafi verið smyglað út úr Rússlandi fyrr í þessum mánuði. Hún segist greina frá samstarfi sínu við FSB nú til þess að hjálpa öðrum í sömu stöðu.
Þær Nadezhda Tolokonnikova, Mariia Alekhina og Liudmila Shtein hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt á undanförnum árum en þær voru allar liðskonur Pussy Riot.
Pussy Riot öðlaðist heimsfrægð þegar meðlmir hennar ruddust inn í Kirkju krists lausnara í Moskvu árið 2012 til þess að andæfa rússneskum stjórnvöldum og rétttrúnaðarkirkjunni.
Meðlimir sveitarinnar hafa, líkt og aðrir aðgerðasinnar og andófsfólk í Rússlandi, sótt ofsóknum stjórnvalda heima fyrir. Shtein var meðal annars dæmd í fangelsi í heimalandinu vegna samfélagsmiðlafærslna sem hún skrifaði gegn innrásarstríði Rússa í Úkraínu.