Ofurfyrirsætan Adriana Lima hefur lengi verið eitt þekktasta andlit tískuheimsins og vakti á ný athygli þegar hún sneri aftur á tískupall Victoria’s Secret á síðasta ári.
Á bak við glæsilegt yfirbragð fyrirsætunnar leynist hins vegar afar agaður lífsstíll sem byggir á daglegri hreyfingu, ströngu mataræði og miklum svefni.
Lima, sem er 45 ára og frá Brasilíu, hefur áður greint frá því að hún æfi nánast á hverjum degi.
Stundar box af krafti
„Ég er í ræktinni á hverjum degi. Ef ég kemst ekki í ræktina þá æfi ég einhvers staðar annars staðar, til dæmis heima hjá mér,“ hefur hún sagt.
Hnefaleikar eru stór hluti af æfingaprógrammi fyrirsætunnar og hafa þeir um árabil verið hennar helsta líkamsrækt. Samkvæmt henni sjálfri fara um 80 prósent af æfingum hennar fram í hnefaleikasalnum. Auk þess stundar hún fjölbreyttar þolæfingar, kjarnaæfingar (fyrir kvið og bak) og hlaup nokkrum sinnum í viku.
Lima hefur einnig sagt að hún ferðist gjarnan með sippuband sitt svo hún hafi aldrei afsökun fyrir því að sleppa æfingu.
Sex litlar máltíðir og tveir lítrar af vatni
Mataræðið er ekki síður skipulagt. Hún borðar sex litlar máltíðir á dag og drekkur um tvo lítra af vatni. Dagurinn hefst gjarnan á hafragraut með ávöxtum og hnetum, en yfir daginn neytir hún meðal annars próteinhristinga, kjúklings, grænmetis, kínóa og hrísgrjóna.
Þrátt fyrir agann leyfir fyrirsætan sér þó einstaka sinnum eitthvað gott. Hún hefur viðurkennt að súkkulaðikaka sé hennar helsti veikleiki.
„Ég elska súkkulaðiköku og nýt hennar alltaf þegar ég fæ mér hana. Vandamálið er bara að ég stoppa sjaldan við eina sneið,“ hefur hún sagt í viðtölum.
Lima segir einnig að reglulegur svefn skipti miklu máli fyrir heilsuna. Hún reynir að sofa um níu klukkustundir á nóttu og stundar hugleiðslu áður en hún fer að sofa.
Adriana á þrjú börn en hún er gift kvikmyndaframleiðandanum Andre Lemmers. Parið hefur verið saman frá árinu 2021 og eignaðist soninn Cyan árið 2022. Áður var hún í hjónabandi með körfuboltamanninum Marko Jaric.