Það var ekki beint það sem flestir myndu kalla spánarveður í loftinu þegar blaðamaður lagði af stað til CampoAmor í Orihuela Costa á Spáni, en þar voru Íslendingar að kjósa utankjörstaðar í komandi sveitastjórnarkosningum.
Það rigndi eins og hellt væri úr fötu og þrumur og eldingar létu sig ekki vanta, vonandi ekki fyrirborði um hvað fólk væri að kjósa. En þegar komið var á kjörstað var stemningin góð og varla hægt að heyra annað tungumál en íslensku.
Mikill fjöldi Íslendinga var þarna samankominn, sumur í golfi og að drekka bjór, aðrir að fá sér nýtt vegabréf eða að endurnýja það gamla, en flestir þó til að nýta kosningarétt sinn.

Það var þungskýjað en létt yfir fólkinu og vonandi kusu allir rétt.
Hægt er að sjá kosningaumfjöllun Nútímans í spilaranum hér fyrir neðan.