Ökumaður bifreiðar sem lenti í alvarlegu umferðarslysi á Hálsasveitarvegi rétt norðan við Reykholt 16. júní lést á bráðamóttöku Landspítalans.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi.
Tvær fólksbifreiðar skullu saman, en ökumenn og farþegi voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem ökumaður annarrar bifreiðarinnar lést.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi fer með rannsókn málsins.