Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls gistu fjórir í fangaklefa í nótt. Töluvert var um hávaða og óspektir, sér í lagi á varðsvæði lögreglustöðvar eitt sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes.
Þar voru ökumenn í spyrnu og óku á 190 kílómetrum á klukkustund. Lögreglan fór á vettvang og ræddi við ökumenn en ekki kemur fram hvort þeir hafi hlotið sekt eða misst ökuréttindin. Þá var tilkynnt um menn sem voru að reyna að brjóta upp hurð í heimahúsi. Þeir reyndust vera að leita að farsíma.
Enn aðrir voru tilkynntir vegna þess að þeir voru að berja í bifreiðar og ónáða fólk. Þar var einn handtekinn fyrir ölvun og óspektir á almannafæri og látinn gista í fangaklefa þar sem hann var ekki talinn hæfur til að vera úti á meðal almennings vegna ástands síns.
Lögreglan á varðsvæði fjögur, Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ, þurfti að banka upp á í einu húsi vegna tilkynningar um mikinn hávaða. Þar reyndist vera ungmenni að spila tölvuleiki og var hann beðinn um að lækka í sér.
Þá barst tilkynning um aðila sem reyndi að komast inn á heimili. Hann reyndist vera ölvaður og fór húsavillt en lögreglan vísaði honum til síns heima.