Aðalstein Svan Hjelm grunaði að eitthvað misjafnt væri á seyði þegar hann var látinn borga 16 þúsund krónur í aukagjald fyrir tvær handfarangurstöskur sem hann fór með í flug með EasyJet.
Eftir marga mánuði af samskiptum og kæruferlum af ýmsum toga vann Aðalsteinn fullnaðarsigur og fékk gjaldið endurgreitt. „Ég skemmti mér bara konunglega í gegnum þetta allt saman,“ segir hann í samtali við fréttastofu.
Aðalsteinn er vanur að fljúga með sömu handfarangurstösku og hefur aldrei lent í vandræðum. Þegar hann og dóttir hans voru á leið í flug frá Gatwick flugvelli með EasyJet voru feðginin stöðvuð og beðin um að setja töskurnar sínar í málmgrind til að athuga hvort þær uppfylltu reglur flugfélagsins um stærð handfarangurs.
Þekkir töskuna ágætlega
Aðalsteinn segist hafa ferðast vítt og breitt um heiminn án vandræða með töskuna sína.
„Hún var langt frá því að passa ofan í grindina,“ segir Aðalsteinn. „Þetta fannst mér stórundarlegt, ég þekki þessa tösku ágætlega. Hún er sérstaklega vottuð til að standast kröfur hjá EasyJet. Ég talaði við starfsmann vegna þess að ég veit að hún stenst kröfur en það var ekki hlustað.“
Hann endaði á að borga 16.000 krónur í aukagjald fyrir handfarangurstöskurnar tvær þrátt fyrir mótmæli sín og annarra farþega.
„Ég sá fleiri í kringum mig sem voru miður sín yfir því að töskurnar þeirra pössuðu ekki. Mér fannst eitthvað ekki stemma þarna,“ segir Aðalsteinn. „Ég tók myndir af öllu og hóf daginn eftir formlegt kæruferli hjá EasyJet.“
Málmgrindin aldrei mæld
Kæruferlið skilaði engu svo hann sneri sér að flugvellinum sem vildi heldur ekkert gera. Þá leitaði hann til Aviation ADR, óháðs úrskurðaraðila í deilumálum flugfarþega. Á öllum stigum var kröfunni hafnað.
„Það var mikill mótþrói í kerfinu og það var erfitt að ná í Easyjet. Þetta var feiknamikil vinna,“ segir Aðalsteinn.
„Á engum tímapunkti var gripið til þess einfalda úrræðis að mæla málmgrindina með óháðum hætti. Mér fannst það vægast sagt undarlegt og var ekki tilbúinn að kyngja þessu og fór því að skoða málið betur.”
Fjárhagslegur hvati að töskur passi ekki
Við nánari skoðun sá Aðalsteinn að fleiri hefðu lent í svipuðum hremmingum. Samkvæmt erlendum greinum hefur EasyJet útvistað þessum verkefnum til verktaka. Farþegar greiða um átta þúsund krónur fyrir hverja tösku sem er talin of stór og af þeirri upphæð fær verktakinn um 420 krónur.
„Ef þessar upplýsingar eru réttar skapast augljós fjárhagslegur hvati til að finna sem flestar töskur sem passa ekki,“ segir Aðalsteinn. Hann segir tekjur EasyJet af aukagjöldum nema um 30% af heildartekjum flugfélagsins eða um 413 milljarðar íslenskra króna.
„Það er því ljóst að aukagjöld eru ekki smávægilegur hluti af rekstrinum heldur afar mikilvæg tekjulind sem kemur meðal annars til vegna svona vinnubragða,“ segir hann.
„Kannski er það bara svona sem þessi lággjaldaflugfélög ná að halda verðinu á flugmiðanum niðri og ná svo inn aurunum með klækjabrögðum líkt og við Inga okkar lentum hér því miður í.“
Síðasta tilraun Aðalsteins var að senda nokkrum helstu stjórnendum EasyJet tölvupóst. Í gær var haft samband við hann. Hann var beðinn afsökunar og honum sagt að hann fengi gjaldið að fullu endurgreitt.
Að sögn Aðalsteins viðurkenndi EasyJet að eftir rannsókn sem flugfélagið hafi hrint af stað hafi verið ákveðið að fjarlægja allar stálplötur úr umræddum farangursgrindum á Gatwick.