Leitin hefur ekki enn borið árangur og verður henni haldið áfram þar til viðkomandi finnst, segir í tilkynningu frá lögreglu.
Þá kemur fram að dregið verði úr leitinni þegar myrkva tekur í kvöld en henni framhaldið af fullum krafti í fyrramálið þegar birta tekur.
„Að aðgerðum koma m.a. lögregla, björgunarsveitir, sérsveit Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslan, Rauði [k]rossinn, sjúkralið og slökkvilið,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Hátt í hundrað manns taka þátt í aðgerðinni frá öllum björgunarsveitum á Austurlandi en tilkynning barst um atvikið rúmlega eitt í dag.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, sagði fyrr í dag að fyrstu viðbrögð hefðu verið að senda eins mikinn mannskap á svæðið og kostur var. Gengu björgunarsveitarmenn svo meðfram ánni frá brúnni við Klaustursel og flugu myndavéladrónum yfir svæðið.
Sérstaklega var hugað að leit frá Stuðlagili þar sem síðast sást til mannsins. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á svæðið upp úr klukkan hálf fjögur með straumvatnsbjörgunarmenn frá Reykjavík og flaug meðfram ánni, að sögn Jóns. Leit heldur nú áfram.
Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður komu nærstaddir konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.