Um þúsund nemendur eru í Fjölbrautaskóla Suðurlands en þeir koma af öllu Suðurlandi og þeir sem búa lengst frá skólanum eru oft á heimavist. Núverandi heimavist er í leiguhúsnæði en það húsnæði var meðal annars dvalarheimili fyrir aldraða á Selfossi til margra ára og hentar skólanum ekki sem heimavist.
Það þarf því nýja heimavist fyrir næstu skólaár og er búið að undirbúa auglýsingu til að auglýsa eftir nýju húsnæði.
„Þetta hefur verið unnið í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið og síðan Framkvæmdasýsluna ríkiseignir, sem mun auglýsa eftir húsnæði fyrir heimavist til leigu,” segir Soffía Sveinsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hún vonast til að ríkið byggi heimavist í náinni framtíð þannig að það þurfi ekki að leigja húsnæði.
„Það er svona framtíðarmúsík og það er já það sem við myndum vilja í framtíðinni. En á meðan það er ekki búið að taka ákvörðun um það þá er þetta bráðabirgðalausn að auglýsa eftir leiguhúsnæði til næstu ára,” segir Soffía.
En yrði heimavistin að vera á Selfossi eða í nágrannasveitarfélögunum?
„Það er æskilegast að það sé á Selfossi.”
En hvað eru margir nemendur á heimavist í dag?
„Það eru 14 nemendur núna en leigusamningurinn er fyrir 20 nemendur, það geta verið 22 en þau eru 14 eins og staðan er í dag.”
Og þú ert bjartsýn á að þetta mál leysist og fari vel?
„Ég er alltaf bjartsýn, það þýðir ekkert annað, annars getur maður bara pakkað saman,” segir Soffía Sveinsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands.